mánudagur, nóvember 29, 2004
Nýtt líf...dalalíf...
Rétt fyrir síðustu helgi tók líf mitt miklum breytingum....kannski er það búið að taka langan tíma að breytast og bara skall einhvernveginn á núna, en ef ég væri í vendipunktaleiknum þá mundi ég segja að síðasti fimmtudagur hafi verið vendipunktur í mínu lífi. Þetta byrjaði allt um morguninn þegar pabbi tók sitt reglulega "hvernig líður þér, hvað ertað gera, hvað ætlarðu að gera osfvr...?????" eftir samtalið var ég alveg í lausasta loftinu því ég uppgötvaði að ég vissi ekki alveg nógu vel hvað ég væri að gera og að ég þyrfti að taka fullt af ákvörðunum sem ég var búin að vera að slá á frest í minni einstöku sjálfsblekkingu...um eftirmiðdaginn spáði thelma fyrir mér í bolla og spil og ekki gerði það nú ástandið betra...mér leið eiginlega soldið eins og ég væri línudansari sem kann ekkert að labba á línunni og er aaallveeg að detta...en þá komu gestir inn í líf mitt. um kvöldmatarleytið fann ég nokkur sníkjudýr í mínu undurfagra og væmna hári....auðvitað var ég glöð að hafa gert þvílíkt góðverk að halda nokkrum litlum sætum lífverum á lífi í einhverja daga...en ég ákvað samt að þær yrðu að fara..og hárið með...mér var alveg farið að þykja soldið vænt um þetta hár en þegar ég uppgötvaði litlu dýrin sá ég hárið í nýju ljósi. hárið mitt fagra var ekkert minna en rót alls hins illa í lífi mínu...það var útaf hárinu sem ég var búin að vera svona væmin undanfarið, hárið byrgði mér sýn og hélt mér í sjálfsblekkingunni, hárið gerði lífi mitt leiðinlegt, væmið og hallærislegt...þetta allt saman kom svooo skýrt í ljós strax daginn eftir, því þá hafði ég endurheimt mitt gamla sjálf sem að hengur ekki heima hjá sér í væmnum rólegtheitum, heldur fer í heimspekipartí og hittir skemmtilegt fólk, fer svo ein út á lífið og hittir ennþá meira af skemmtilegu fólki og endar svo í "ein af strákunum" stemmningunni gömlu góðu...daginn eftir vaknar hún þunn og hress og fer svo aftur út á lífið og endar í brútal fylleríi fram á nótt með hóp af ísfirskum karlmönnum..hahaaa....ásamt þessum umskiptum á hversdagshelgarlífinu urðu líka umskipti á hugsunarhætti varðandi hvað skal gera með lífið sitt...ég átti nebblega í engum vandræðum með að ákveða það um helgina að ég ætla að hætta í tilgangslausu m.a. námi hér á fróni og skella mér strax næsta haust út til lancaster í englalandi og verða þar næstu fjögur árin þar til ég verð orðin doktor gugga....sköllótta doktor gugga...hahaa sampai nanta og sjáumst á barnum..

þriðjudagur, nóvember 23, 2004
Halló Halló Heimur
Að sofa of mikið er ekki gott. Þess vegna hef ég ákveðið að reyna að hætta að sofa of mikið. Afleiðingar af því að sofa of mikið geta verið margskonar, en sú alvarlegasta er líklega sú að of mikill svefn getur orðið til þess að svefngengillinn breytist í risastórt of ógnarlegt letidýr. Letidýrið tekur öll völd, heimtar nammi, vídjó og meiri svefn og neitar að hugsa eða framkvæma. Já já allavega þá ætla ég að vakna snemma á morgun og horfa á yoga á dvd...það er allavega byrjun...
Að öðru. Um daginn minntist ég á hagnýti tónlistar...við vitum öll að tónlist er hagnýt...tónlist er yndisleg, lífsnauðsynleg og allt það...en það vita það ekki allir...mér finnst alltaf jafn skrýtið þegar ég hugsa um að hlutir sem mér finnst alveg sjálfsagðir finnst einhverjum öðrum vera argasta vitleysa og skilja mig bara ekki neitt og ég skil þetta fólk heldur ekki neitt....vó! ég fékk emil frá fíh áðan um bók sem var að koma út um hagnýti tónlistar og í skeytinu stóð meðala annars: "Framlag menningar til landsframleiðslunnar er 4%, sem er meira en öll starfsemi raf-, hita- og vatnsveitna og nær þrefalt meira en landbúnaður eða ál- og kísiljárnsframleiðsla. Um 5.000 manns starfa við menningu hérlendis, sem er álíka fjöldi og starfar í útgerð eða í hótel- og veitingarekstri. Hinar skapandi atvinnugreinar verða sífellt mikilvægari í hagkerfinu.
Um 1.200 manns vinna við tónlistariðnað, sem er tæplega 1% af íslenskum vinnumarkaði. Fyrirtæki í tónlistargeiranum velta um 6,5 milljörðum kr. á ári og framlag tónlistar til landsframleiðslunnar er um 1%. Um 43 milljörðum kr. var varið af einkaneyslu árið 2003 í menningu og er hlutur tónlistar þar af um 8,5 milljarðar kr.
Tónleikum hefur fjölgað verulega undanfarin ár, sérstaklega á landsbyggðinni, og er klassísk tónlist langalgengust. Fjöldi tónlistarskóla hefur nær sexfaldast síðustu fjóra áratugi og eru þeir nú 80 talsins. Nemendafjöldi í tónlistarskólum hefur ellefufaldast síðustu fjóra áratugi og nemendur eru nú 12.000 talsins. Tugir kóra starfa á landinu og eru kórfélagar yfir 3.000 talsins."
Jabb þá vitum við það. Ég fór einmitt á kóræfingu um daginn eftir einn góðan bjór á stúdentakjallaranum...og hugsaði jahá þetta er sniðugt og ætla að mæta aftur en það þýðir að ég ætti að vera komin á kóræfingu eftir nákvæmlega hálftíma! sjitt! og ég á eftir að ákveða mig og allt! hmm...það er náttlega frábært og nauðsynlegt að fara í kórinn því að þar fæ ég ókeypis söngkennslu...jabbadabbadú veit ekki neitt...veit það allavega því ég er heimspekingur...

mánudagur, nóvember 15, 2004
Skrýtið líf
Það er undurfallegt veður úti, og ég er búin að vera á flakki um svæðið mitt síðustu þrjá tímana....svæðið mitt er háskólasvæðið og miðbæjarsvæðið, ég fer aldrei út fyrir þetta svæði...er ekki skömm að því? vill einhver koma með í strætó upp í breiðholt eða í fossvoginn? allavega...var að labba úti í fegurðinni hér áðan og hugsa um lífið og þá kom setning upp í hausinn á mér: just when you think you've got it all figured...it changes again. Þetta sagði bill pullman (vá nú finnst mér eins og ég sé að bulla þetta nafn...heitir hann í alvöru bill pullman?) í myndinni end of violence eftir wim wenders, og reyndar líka á samnefndum geisladisk, sem er mesti snilldardiskur í heiminum. og þetta er soldið málið. lífið er endalaust skrýtið. það getur aldrei neitt verið eðlilegt og auðvelt í langan tíma...ef að allt er eðlilegt og auðvelt og allt í gúddí, þá fer maður strax að fyllast einhverri óróleikatilfinningu vegna þess að reynslan hefur kennt manni að ekkert endist...just when you think you've got it all figured..it changes again...en það góða við þetta er þá að ef þessi regla gildir þá getur maður kannski treyst því að þegar allt er ömó og glatað endist það ekki heldur....vá þannig að þegar maður er í ömó og glataða ástandinu þá hefur maður eitthvað til að hlakka til, þá er eitthvað betra á leiðinni, en þegar maður er í gúddí ástandinu þá getur maður búist við því að allt fari í rugl....djös bull maður...á maður þá að vera hamingjusamur þegar maður er óhamingjusamur og óhamingjusamur þegar maður er hamingjusamur? vóó! nú er ég alveg komin í vitleysuna....gætuð þið ekki stundum ælt á hvað ég er sjúklega jákvæð? hér er ég að tala um að þegar allt er ömurlegt þá á manni að líða best því að þá er eitthvað gott á leiðinni...er það ekki hámark rugl-jákvæðninnar? ég get svarið það og maður lifandi barasta....af hverju er ég að hugsa svona mikið yfirleitt? afhverju er ég ekki eins og gaurinn hérna við hliðina á mér sem er bara í ping pong eða einhverjum hugsunarlausum rugl tölvuleik? o well ég mundi svosem ekkert vilja vera soleis...það er soldið gaman stundum að hugsa...hugsi hugs...já sko annað sem ég hugsaði áðan þegar ég horfði á fallega snjóaða esjufjallið: rétt upp hend sem vill koma upp í sumarbústað næstu helgi og leita að gleðinni og fegurðinni? (ekki eins og maður þurfi eitthvað að leita...þær eru bara þarna..) ef þið getið ekki rétt upp hend þannig að ég sjái í gegnum tölvuskjáinn þá er hægt að kommenta líka..jemmerijæja ætla að halda áfram að wander around...sjáumst mín kæru...

miðvikudagur, nóvember 03, 2004
Vekjaraklukka og gúmmístígvél
Í morgun fékk ég nýja sönnun fyrir því að maður eigi aldrei að hafa áhyggjur af neinu og alltaf að tjilla því að það reddast alltaf allt: ég svaf yfir mig. klukkan hálftíu vaknaði ég og sagði shit, ég þarf að vera komin eftir korter uppí skóla að hitta kennara, ó nei ó nei ó nei! ég er alltof seinn lúði og hvað helduru að fólk haldi? svo hjóla ég eins og brjúlet og þar bíður eftir mér emill þar sem kennari segir, hei skulum hittast klukkan tíu eða korter yfir jafnvel.....þannig að: ef maður sefur yfir sig þá var það bara vegna þess að maður mátti það alveg....hahaaaa! en ég held ég þurfi samt að fá mér eitthvað sniðugt til að vekja mig á morgnana...síminn minn er ómögulegur...bíbíbíbb, sker mann í eyrun þannig að það fyrsta sem sofandi ég geri er að slökkva...og ég get alveg verið sofandi og slökkt á 5 mín. fresti í tvo klukkutíma....jamm ég held að mig langi í svona góðan vekjara sem vekur mann fallega...spilar eitthvað skemmtilegt lag, segir manni brandara eða eitthvað....svo vantar mig líka gúmmístígvél af því það rignir svo mikið maður...og rigningin á götunni veldur því ekki að ég verði blaut í tærnar heldur verð ég blaut á kálfunum því hún slettist einhvernveginn þangað....gúmmístígvél eru málið.....annars er það að frétta að eftir tjillaða helgi í sveitinni (má ég ekki segja það annars um Garðinn og Keflavíkina?) er ég komin aftur í bæinn og allt á fullu...billjón ritgerðir bíða á færibandinu og þokast nær...annars átti ég frjálslegt dömukveld í gær...frú petrulíus átti ammæli og við anna katrín og ammælisbarn fórum út að borða eins og alvöru dömur og fengum okkur svo bjór í eftirmat...mmmm vei...en ég gleymdi að setja á mig varalit...o well....jemmeríhei, ég held ég verði að hætta núna þó það sé margt merkilegt sem þarf að segjast brátt, en ég læt það bíða...umfjöllunarefni næstu blibba verður m.a. bóndabæli og tónleikahátíðir og hagnýtt gildi tónlistar( er titill hádegisfyrirlestrar í odda 101 í dag..interesting..)....wellio smellio sampai nanta..