miðvikudagur, desember 15, 2004
jólin jólin allstaðar?
eða hvað er þetta fyrirbæri sem er allsstaðar núna? ég er farin að hallast að því að þetta séu ekkert jól lengur. Í fréttunum í gær: sala í verslunum hefur aukist um næstum 20% frá því í fyrra! og þá hafði salan aukist um 15% frá því á árinu þar á undan! og þetta var jákvæð frétt sem endaði á umfjöllun um hvernig eiginmenn geta farið í veromoda og lýst konunni sinni fyrir afgreiðslupíunum og þær redda gjöfinni! vúbbí! af hverju var þetta ekki neikvæð frétt? af hverju sagði gaurinn ekki í dapurlegum tón: salan hefur enn og aftur aukist um jólin sem sýnir að jólahátíðin snýst sífellt meira um peninga, hátíð neysluhyggjunnar frekar en hátíð ljóssins og friðarins...friðarins! er einhver friður sem einkennir þetta tímabil? endalaus ruslpóstur með 2000 jólagjafahugmyndum! vei! endalausar auglýsingar og áreiti, allir á hlaupum í kringlunni að fá taugaáfall yfir því að vera ekki búinn að finna allar réttu gjafirnar í sæmilega kúl verðflokki...kannski kemur friðurinn yfir fólkið á aðfangadagskvöld þegar það áttar sig á því að stressið og áreitið er búið! loksins!....bleeeeeeeeeee...biðst afsökunar ef ég er að eyðileggja jólastemmninguna fyrir einhverjum en svona er þetta bara...ég er samt ekkert á móti jólunum...ég elska jólin...það er að segja að ég elska þann part af jólunum sem snýr ekki að neysluhyggjunni..ég elska að allir séu í fríi, að hitta vini, fjölskyldu...spila...drekka....sofa ýkt mikið, borða ýkt mikið súkkulaði...allt þetta sem tengist gleði og friðið og ljósi og fegurð...einbeitum okkur að þessu kæra fólk...en annars er það að frétta að ég er orðinn garðbúi aftur en á samt fullt af drasli í herbergi í reykjavík (vill einhver leigja herbergi á besta stað í borginni?)og eyði mestum tíma mínum í keflavík...hvað er ég þá? ætlað farað vinna í fiski í janúar og flýja síðan sem fyrst af landi brott....það er alltof kalt hérna og of mikil kaldhæðni og rugl í gangi fyrir minn smekk...kem aftur eftir fimm ár og redda klakanum áður en ég fer að redda heiminum....sampai nanta..