<$BlogRSDUrl$>

laugardagur, janúar 29, 2005

tilbreytingar
á fimmtudagskvöldið varð ég afar glöð í hjarta mínu...þá fór ég til reykjavíkur í fyrsta skipti síðan í desember...ó hve það var ljúft og gaman, að hitta fólk og staði sem voru fastagestir í hversdeginum mínum þá en eru það ekki lengur. ég fékk að fara á tónleika sem var gúlú því að ég hef þráð tónleika afar mikið undanfarið...veivei..og ég fékk að hitta önnu katrínu og petru og grandrokk...jibbbí jei....í kvöld fæ ég svo að fara til borgarinnar aftur...er að fara í fancy matarboð með víni og merkilegheitum miklum...býst við að leysa margar lífsgátur..hahha svo tek ég stefnuna á vini og vinalega staði...vinalega tónleika og jibbí jei... í gærkvöldi varð ég líka glöð í hjarta mínu vegna þess að þá létum við Lindulíus planið ganga fram...bad bad fishes er sko barasta heví slagari...bíðið bara kæra fólk...þið munið öll fá það á heilann one day...ógó gaman að vera í stelpuhljómsveit...eða meira svona fiskhúsatrúbadoradrusluhórur...já það er eiginlega málið ...við erum sko ekkert girl band....haha vúí....sjáumst og sampainanta.

þriðjudagur, janúar 25, 2005

hugsanaleysi
þetta hugsaði ég í vinnunni í dag:
"tinky winky, lala, tipsy, dó"
"our house is a very very very nice house",
"hann átti skóna sem ég skeit í , og ég var í stígvélum, æ æ æ æ æ æ ææææ æ æ æ æ æ æ æææ"
" mér finnst svo gaman í skólanum því ég er alltaf meeeð, dúndrandi standpínu"
" how can we be lovers if we can't be friends, how can we be lovers if we can't be can't be friends"
"rin tin rin tin tin, svona gerir pabbi þinn með tíu tommu tittlinginn" (karitas kenndi mér þetta..)
" aaaaga tjú tjú tjú hrista epli niðrúr tré, aga tjú tjú tjú og svo fá sér allir teeee"
" ástin tekur öll völd þegar við erum saman, það er svo gaman"
"don't you now we're riding on the marakesh express, they're taking me to marakesh, all on board the traiiin"
"bæjabæ bæ bæ bæ bæ ja bæ bæ bæ bææææ"
"hjálpaðu mér upp mér finnst ég verað drukkna.."
"wild wild horses, couldn't drag me awayyy" sem breytist í
"bad bad fishes couldn't drag me awayyyy"
semsagt, ég hugsa ekki í vinnunni! alla daga frá 8-5 hugsa ég barasta mest lítið, hausinn á mér er alltaf svo upptekinn við að tralla einhver lög að hann hefur yfirleitt ekki tíma til að vera að hugsa neitt annað...og þessi lög! hvaðan koma þau? þau poppa bara upp í hausnum á mér out of nowhere..nema þessi sem karitas kennir mér...sum eru góð lög, sum eru vond lög, sum hef ég ekki heyrt í tíu ár og hafa aldrei verið í uppáhaldi hjá mér..váaaáaa ég skil þetta fyrirbæri ekki alveg. en punkturinn er, ég hugsa ekki í vinnunni...ég er í hugsanafríi.. sem hlýtur bara að vera af því góða því að þá er ég allavega ekki að hugsa um eitthvað neikvætt og leiðinlegt á meðan...en hei er ég þá að fara á mis við einhverjar góðar hugsanir líka? shit maður...verð að kaupa batterí í geislaspilarann...eða byrja á því að finna hann..það virðist sem huldufólkið hafi fengið hann lánaðan..djööbs..ég ætla að farað gera eitthvað skemmtilegt núna..tala við fólk og hætta að söngla inn í hausnum á mér og fara frekar og söngla upphátt...sampai nanta...


þriðjudagur, janúar 18, 2005

fiskvinnslublús..
já kæra fólk...líf mitt hefur tekið stakkaskiptum...það er að segja, ég hef skipt um stakk...nú geng ég ekki lengur um götur reykjavíkurborgar í pilsi og kápu verandi hipp og kúl háskólastelpa..ó nei...nú geng ég bara um blá fiskvinnslugólf í bláum slopp, hvítum stígvélum og hvítum pollasmekkbuxum...nú er ég hipp og kúl fiskvinnslukerling..drykkfelld fiskvinnslukerling sem syngur um bad bad fishes þegar ormarnir taka völdin.. hápunktur dagsins í dag var þegar ég fékk afhend skjannahvít glæný alvöru fiskvinnslustígvél og glænýjar pollabuxur í stíl...búin að vera að vinna í tvær vikur í svörtum nokia stígvélum, rennandi mér í slorinu og fimm sinnum næstum búin að hálsbrotna, og í gömlum buxum af Lindu.. mér leið ekki eins og ég væri alvöru kúl fiskvinnslukona fyrr en í dag þega ég klæddi mig í nýju fötin..angandi af glænýju plasti...yndisleg tilfinning... næsti hápunktur var þegar ég fékk de var brendevin i flasken á heilann...það er nebblega ekkert útvarp í vinnunni og ég á engin batterí í cd playerinn svo að ég verð að hlusta á mitt eigið söngl inn í hausnum á mér allan daginn.. og það er alltílæ þegar ég fæ að velja lögin sjálf...en í dag ákvað hún Karítas frænka mín og samstarfskona að syngja svoldið upphátt fyrir okkur og slagarar eins og brendevin í flasken og attikattinóa urðu fyrir valinu...helvítið á henni...það sem eftir var dags söng ég brendevin í flasken í eigin höfði gegn mínum vilja...djös bull.... vá ég get röflað um ómerkilegustu hluti í heimi núna... það er nebblega soldið erfitt að vera fiskvinnslukerling...það er mikil hætta á að maður fari að lifa algerlega tilbreytingarlausu lífi....skil ekki hvernig fólk getur verið að vinna svo árum skiptir við það sama...ég er núna í fyrsta skipti á ævinni að vinna um vetur og er strax farin að hafa áhyggjur af tilbreytingarleysi... en ég kann sem betur fer að skemmta mér og planið er því að skemmta mér við hvert einasta tækifæri....þannig að ef ykkur langar að gera eitthvað skemmtilegt..þá endilega hringið í mig eftir klukkan fimm....sæjonara..

miðvikudagur, janúar 05, 2005

fokk shit fokk..þetta hefur aldrei komið fyrir mig áður..allt helvítis bullið mitt hvarf...djöfulsins kúkavitleysa...ég er hætt.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?