<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, febrúar 23, 2005

sæjónara æm átoff þis pleis
já nú er komið að því, þvotturinn kominn í vélina og kreditkortið í vasann...á morgun á sama tíma verð ég stödd í hinum sögufræga enska smábæ Rye...vávúbbíheijósmei! svo er það allra morgundaga partí um helgina....í þetta skiptið er ég búin að fá örlitla kynningu á nokkrum af þeim snilldarhljómsveitum sem ég er að fara að sjá og mikið er ég glöð í hjarta mínu að fá að eyða heilli helgi í viðbót af lífi mínu í það að hlusta á yndislega tónlist með fullt af yndislegu fólki...ég er svo heppin að það er bara hreint alveg ótrúlegt... ég er alltaf að sjá það betur og betur hvað ég hef það gott og er mest heppin...í fyrsta lagi fæddist ég í heiminn á einni af fallegustu, bestu og friðsælustu eyjum heimsins, svo er ég heilbrigð, á yndislega foreldra og systkini, hef aldrei verið svöng í langan tíma, hefur aldrei verið kalt heldur....svo er ég með góðan heila sem hefur aldrei brugðist mér í skólagöngunni sem hefur líka verið góð og skemmtileg, svo lærði ég að spila á hljóðfæri sem er ótrúleg heppni...ég á endalust marga frábæra og súpergóða vini, og ekki bara hér á landi heldur í öðrum heimshornum líka, ég kemst alltaf allt sem mig langar að fara, ég hef gert allskonar skemmtilegt rugl og sé ekkert fram á að það minnki...ég er frjáls eins og fuglinn og það er gaman!!! vá fólk segir stundum að ég sé jákvæð...hmmm...skil ekkert í því..hahaaa....svo lengi sem maður ælir einstaka sinnum á sjálfan sig þá er alltílagi að óverdósa á jákvæðninni þar á milli...en ég held að það sem kom þessum heppnis hugsunum mest af stað sé soldið sem kom fyrir mig um daginn....ég lenti í smá umferðaróhappi og gaurinn sem var í næsta bíl fyrir aftan mig og stoppaði til að hjálpa, hringja á löggu og hughreysta, sagði svona um það bil 37 sinnum "vá þú ert svo heppin" og það var alveg rétt hjá honum, því þótt óhappið hafi endað vel og ekkert alvarlegt komið fyrir mig, bílinn eða aðra, þá hefði það getað enda á annan hátt, allir bílarnir sem voru að keyra á sama tíma á 3ja akgreina kópavogsbrúnni hefðu getað keyrt mig og sig í spað þegar ég flakkaði á milli akgreina og snerist í hringi á milli þeirra, ég hefði getað endað á stórum hlunkastaur sem ég straukst framhjá, og ég hefði getað farið fram af brúnni og lent á akbrautinni fyrir neðan og kramið mig og aðra í klessu...ef ég hefði ekki verið svo HEPPIN að bíllinn stöðvaðist á grindverki upp á brúnni...já ég er svo svakalega heppin...vúbbí vei og þvílík heppni líka að eftir ATP festivalið fæ ég að fara í sófaferðalag um Stóra Bretland...byrja á manchester með jo og félögum eftir helgina, tek svo rútu til brynhildar og rúnars í york og svo í lest til fögru aberdeen í skotalandi þar sem ég mun dvelja meðal skota...svo flýg ég til london og fer beint heim í fiskinn þann 7unda mars....vávei og vúbbíhei! þvílík heppni! vá ég held ég verði að segja 7 9 13 ég er búin að tala svo mikið um heppnina....sampai nanta vinir góðir, sjáumst í næstu senu...

fimmtudagur, febrúar 03, 2005

bráðum kemur betri tíð með blóm í haga....
sæta langa sumardaga...ó hvað mig dreymir um þá sætu löngu.....ég er yfirsetukona í suðsuðvestur og fingur mínir eru frosnir greyin...en það er kúl....tilbreytingarnar raðast upp..held ég fari í bæinn aftur um helgina...ég er að fara á samkomu....trúarsamkomu finnst mér...það eru tónleikar með hjálmum sem mér finnst vera trúarsamkoma þeirra sem trúa á það sem ég trúi...fallega orku og alheimsgrúv...hendur upp í loft, hugurinn á flug og appelsínurauð orka flýgur á milli handa samkomugesta þar til myndast þægilegur orkuhjúpur....hér er kalt og dimmt og það verður kalt og dimmt aðeins lengur, og þangað til að betri tíðin kemur þá þurfum við bara að minna okkur á hana með því að hittast og mynda hlýja orkustrauma...þessvegna ætla ég á tónleika í kvöld á morgun og hinn og gleyma mér og myrkrinu um sinn....hafiði tekið eftir því hvað tíminn flýgur? það kemur mánudagur svo miðvikudagur og svo helgi....hvað verður um tímann þar á milli? en ég fíla það því að betri tíðir í ýmsum formum nálgast hraðar eftir því hvað tíminn er duglegur að fljúga....bráðum kemur atp-festival með blóm í haga...langar svo í couch travel eftir festivalið....þarf að breyta flugmiðanum mínum ef það kostar ekki ógó mikið...fékk þrjú email frá aberdeen í síðustu viku...mike tyers tónleikahaldari sagði mér að dr drakes sem hefur svo oft verið á þessari bloggvél, er búið að loka....síðasta open mic kvöldið með ziggy fantastic var í síðustu viku og síðan ekki söguna meir., en annar staður the tunnel er kominn í staðinn...svo skrifaði miss anna mcCarrey og sagði vertu velkomin í heimsókn í nýju íbúðina mína og svo skrifaði mister james greenwood og sagði komdu í heimsókn annars ertu dauð! neiii ekki alveg....svo skrifaði jo líka frá manchester og tjáði mér að það væri laust far í bílnum hennar frá atp til manchester..svo ég er farin að líta á öll þessi bréf á sama tíma sem vísbendingar frá alheimsorkunni...sjáum til hvað þeim hjá icelandair og bankanum finnst um það...jæja núna eru 20 mínútur eftir af opnunartíma suðsuðvesturs og enginn af ykkur eruð búin að koma....nema halli valli og einn maður og kona frá reykjavík....það er hálf skrýtið að gestir hins nýja sýningarrýmis koma flestir alla leið úr reykjavík og sandgerði....menningarbæjunum miklu...hvar eru allir kebblvíkingarnir? þora þeir ekki? vita þeir ekki? fíla þeir ekki list? eða eru þeir bara að horfa á guiding light og chilla...ég skil ekki alveg...en ég villl allavega að allir komi og chilli með ölduganginum....náttúran talar í suðsuðvestri úr mörgum áttum....og svo er harðfiskur í boði....bleeeeeeeeeeeee vá þetta var í fyrsta sinn sem ég sagði fiskur í þessari færslu....held þá áfram....það var enginn fiskur eftir hádegi því að það er ekki sjóveður....fisk house lingó sko...svo að ég fékk frí frá fjörfisknum í bili....wella wella gotta gotta skúbbskúbb skrallala...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?