<$BlogRSDUrl$>

laugardagur, apríl 30, 2005

jibbíjúheiiiiii!!!
lífið er yndislegt og þið vitið það náttlega öll... ég fór á yndislega tónleika í gærkveldi og það var magnaður skítur... annar föstudagurinn í röð sem ég hoppa yfir í sugartown og inn á frábæra tónleika...það var semsagt úlpa sem var að fagna útkomu smáskífu sinnar og væntanlegrar breiðskífu og með þeim fögnuðu Sofandi og Frank Murder.... ég dó næstum því úr hamingju...fyrst heyrði ég í sofandi í fyrsta skiptið og ég fór barasta inn í þeirra heim og trúði hverju einasta orði sem þeir sögðu...og þeir voru svo fjölbreyttir sem ég kann svo vel að meta... og algjörir snillingar...bassasöngvarinn markús alveg með fingurna í fimmtagír, ótrúlega svona pró ég hef örugglega verið soldið í tónlistarskóla fílingur..og gítarleikarinn líka definetly skólagenginn og gat látið gítarinn hljóma eins og hammondorgel...ó hvað ég var ástfangin....svo mætti herra frank á sviðið og spilaði ofurgrúv sem lét mann langa að dansa en maður dansaði samt ekki því að íslendingar eru bældir lúðar sem dansa ekki! reynum að breyta því gott fólk... og það voru geggjaðir visualar á skjánum eftir Gunnlaug nokkurn Kárason sem er snillingur...ég elska hvað tónlist og myndlist/myndbandalist/gjörningalist eru farnar að blandast saman...í alvöru, hvað margar hljómsveitir t.d í dag eru með algjört leik/gjörnings-performans þegar þær halda tónleika? hmmmmm let me think, æla, skátar, trabant til dææmis, svo eru mjööög margar sem eru alltaf með visuala bakvið...þetta er algjer snilld! að geta farið á tónleika og listsýningu bæði í einu...vúúhúúúú! allavega áfram með söguna....allt í einu er frank morð komin upp á svið með allavegana 50 uppblásnar glansandi litríkar blöðrur á bakinu! vá það var eins og fallegur ævintýrahali! og maður varð ástfanginn aftur.... já ég er farin að skilja afhverju það er engin tilviljun að ég hef svo oft (held að undantekningin sé bara ein..vó) verið skotin í tónlistarmönnum. já það er vegna þess að þegar maður hlustar og skynjar tónlist þá sogast maður bara í beinni adsl tengingu inn í hugarheim og tilfinningar tónlistarmannsins og maður trúir öllu sem hann segir...og þá er ekkert auðveldara en að verða skotin í þessum heimi ef manni finnst hann fallegur og kannski soldið líkur manns eigin heimi... en þá er spurningin, fyrst að ég er búin að gera þessa stórmerkilegu uppgötvun, hvort ég eigi að reyna að hætta að detta inn í svona annarra manna hugarheima og fara að skoða mennina sem vinna í bönkunum eða á skipunum eða í vörubílunum eða whatever? hahhaa bull og vitleysa...anyhúú ég sit í suðsuðvestri og afhverju komið þið ekki öll í heimsókn þangað og dettið inn í hugarheim hinnar undurfögru Birtu? og ég ætla mér að nota tímann hér til þess að klára að skrifa ritdóm um hann Gunnar Dal sem er snillingur.... heimspekitímaritið Hugur vill að ég skili á morgun....vúhúúú sjáumst í sumrinu kæru vinir...sampai nanta

laugardagur, apríl 23, 2005

mmmmm.... ég er að fara í matarveislu......jibbihúheiiii!
Marrakesh Vegetable Curry fyrir c.a. 6 manns
1 sweet potato, peeled and cubed
1 medium eggplant, cubed
1 green bell pepper, chopped
1 red bell pepper, chopped
2 carrots, chopped
1 onion, chopped
6 tablespoons olive oil
3 cloves garlic, minced
1 teaspoon ground turmeric
1 tablespoon curry powder
1 teaspoon ground cinnamon
3/4 tablespoon sea salt
3/4 teaspoon cayenne pepper
1 can garbanzo beans, drained
1/4 cup blanched almonds
1 zucchini, sliced2 tablespoons raisins
1 cup orange juice
10 ounces spinach
Directions:
1. In a large Dutch oven place sweet potato, eggplant, peppers, carrots, onion, 3 tablespoons of oil. Saute over medium heat for 5 min
2. In a medium saucepan place 3 tablespoons of oil, garlic, turmeric, curry, cinnamon, salt and pepper and saute over medium heat for 3 min.
3. Pour garlic and spice mixture into ther Dutch oven with vegetables in it, add the beans, almonds, zucchini, raisins and orange juice, simmer for 20 min, covered.
4. Add spinach to pot and cook for 5 more min, serve! Bon appetit!

sunnudagur, apríl 17, 2005

ókei ókei ókei...febrúar . . apríl!
vissuð þið að það er komið vor? ekki láta rigninguna og brjálaða rokið og kvefið blekkja ykkur! það er komið vor í andann og það er það sem skiptir öllu máli... það sem er helst af mér að frétta er að ég er loksins orðin jóga gúrú guggan sem ég ætlaði alltaf að verða...eða ég er allavegana að taka fyrstu skrefin í áttina að því að verða hún....byrjaði að heimsækja púlsinn reglulega fyrir tveimur vikum síðan og men ó men hvað hann er góður staður....þangað fer ég í jógatíma tvisvar í viku og safna alheimsorku í hendurnar og tærnar og hausinn og hjartað og vá þvílík víma! en það er samt sko ekkert miðað við orkusprengjuna sem verður til í orkudansi sem ég er líka að prófa í fyrsta skipti....ég verð að viðurkenna að mér leist ekkert á þetta fyrst og þessvegna var ég líka ekki búin að tjékka á orkudansinum fyrir löngu síðan þegar allar vinkvinnurnar voru að fíla þetta í tætlur...nebb þetta var ekki fyrir mig....að dansa einsog vitleysingur í fullum sal af kellingum...o nei...ég dansa sko bara með fullu fólki á barnum....en vá hvað ég var feisuð í lok fyrsta tímans....þegar ég lagðist niður og fann bara græna orkukúlu hylja mig alla og láta mér líða eins og ég væri á einhverju alsælulyfi....all natural....mæli með þessu....bráðum kemur betri tíð með blóm í haga, sæta langa sumardaga....þetta endurtók ég í sífellu einhverntímann í janúar og nú er að koma að því! betri tíðin er alveg komin og það styttist allsvakalega í sætu löngu sumardagana....þá förum við öll upp í sumarsælubústaðinn og dönsum orkudans nakin og hoppum í ánni og veiðum lax með berum höndum! ahhahaaaaa! allt er eins og það á að vera, lífið er yndislegt og ég er með tvö tonn af hori í nefinu.....ætla að setja á mig sólhattinn og leggjast í ímyndað grænt gras...pís át og sampai nanta....

This page is powered by Blogger. Isn't yours?