<$BlogRSDUrl$>

föstudagur, október 28, 2005

utlenska er mitt mal.....
jaeja kaera folk....netid sem eg gat klifrad a ur herberginu minu i galgate yfir til isalands slitnadi um daginn....thessvegna er eg ordin utlensk i utlensku tolvunni i skolanum minum....vonandi fae eg bradum nytt net..kattarmadurinn lofadi ad redda thessu hid fyrsta...eg er buin ad eiga alveg super viku....eg keypti mer heimspekilega dagbok og hef hafid mjog svo heimspekilegt liferni med allskonar heimspekilegum tilraunum a sjalfri mer....er buin ad vakna um 7 leytid alla vikuna (nema i morgun thvi eg fekk matrod i nott sem olli hausverk...sem betur fer man eg ekki martrodina thvi thad eina sem eg man var ad eg var svo reid ad hausinn a mer aetladi ad springa....svo eg vaknadi half 9 i stadinn...) og gera joga til klukkan 9....svo hef eg sturtast, bordad morgunmat, kaffibolla, og arkad i skolann fyrir klukkan 11....thetta er tilraun nr.1 ...naesta tilraun hefst thegar i skolann er komid...eg akvad ad profa hvernig thad er ad vinna skolavinnuna sina a bokasafninu....thad er nebblega alltaf iskalt i herberginu minu a daginn thvi ofninn fer ekki af stad fyrr en um kvoldmatarleytid svo ad eg verd ad vera undir saeng ad lesa...og thad gerir augnlokin thung...svo eg akvad ad profa bokasafnid..mer hefur aldrei likad ad vinna a bokasofnum thar sem thau eru oft med rykmettudu loftleysi og innilokudu rymi...en thetta bokasafn er super...thad hefur risastort herbergi sem er orugglega med 20 m hau lofti, heilan risavegg sem er gluggi og tharafleidandi mikid bjart, stort og med fersku lofti...thar hef eg lesid ofur-mikid og vel alla vikuna...hurrraaa! astaedan fyrir hvad mer hefur tekist vel ad lesa liggur lika i tilraun numer 3.... munid eg sagdi ykkur fra zen-hugleidslunni?....eg er semsagt i tilraun thar sem eg hugleidi ca. halftima a dag seinnipartinn... svo er nytt sem eg laerdi i odrum hugleidslutimanum a midvikudaginn en thad er hugtakid mindfulness....thad felst i 5 skrefum: 1) gera einn hlut i einu 2) vera med fulla athygli a thessum eina hlut sem madur er ad gera 3) thegar hugurinn flytur eitthvert annad, ad draga hann tha til baka 4) endurtaka skref 3 nokkur thusund sinnum..5) thegar hugurinn flytur ad sama hlutnum aftur og aftur ad veita thvi tha athygli...truflunin er tha kannski ad segja manni eitthvad.... thetta er eg buin ad vera ad reyna ad gera og mer finnst thad hafa tha afleidingu ad eg get verid ofur-einbeitt i lestrinum....og bara ollu sem eg geri....roooosalega er thetta snidugt! maeli hiklaust med svona tilraunamennsku....en nu er eg buin ad einbeita mer ad blogginu nogu lengi og tharf ad einbeita mer ad fyrilestri sem eg tharf ad gera fyrir manudaginn....svo tharf eg ad einbeita mer ad thvi ad fara i halloween parti i kvold hja jodie og tom sem eru i deildinni minni... sampai nanta og fridur a jord....

mánudagur, október 24, 2005






gönguferðamyndir....
var að fá þessar myndir úr gönguferðinni okkar um daginn.... aurora voða hress...þarna fer helen yfir grindverkið og svo uli og svo ég, og matt komin yfir.... vá þetta kemur allt í öfugri röð..fyrir ofan þetta erum við í nestisstoppi og ég ekki með neitt nesti...haha..svo erum við á leiðinni upp....leiðin niður...kemur seinna....verð að farað leeeeesssaaaaaaaa....

sunnudagur, október 23, 2005

góðan daginn...
Ég er búin að eiga ofur-frábæra helgi...partíið hjá fólkinu sem ég hafði aldrei séð var snilld...það voru semsagt þau martin, mike og nina sem buðu í partí í tilefni þess að martin átti afmæli....þau eru öll doktorsnemar við ieppp deildina mína og eru fyrirmyndarfólk....þetta var líka fyrirmyndarpartí, fullt af allskonar áhugaverðu fólki, allan tímann var maður þátttakandi í áhugaverðum samræðum....æði pæði....svo vaknaði ég eldsnemma morguninn eftir og hljóp í rútu til Chester...ég, michaela, uli og davey eyddum meirihluta dagsins í að rölta um þessa fallegu borg, fullt af eldgömlum fallegum húsum og kósýheitum...svo enduðum við í risastórri verslanakeðju...vorum þar í einn og hálfan tíma að rölta um á milli búða og kaupa ekki neitt...og það var mjöög þreytandi...en allt kínverska fólkið sem var með í ferðinni var svakalega ánægt með að geta verslað og verslað og verslað....þegar við komum heim um kvöldmatarleytið vorum við soldið þreyttar eftir daginn og vorum á því að við hefðum líklega ekki orku í að fara á ceilidh, þjóðdansaball á the gregson...fólkið úr partíinu kvöldið áður hafði sagt okkur frá því að þetta ceilidh væri það besta...en eftir smá hvíld og kvöldmat og hvatningu frá auroru, ákváðum við michaela að skella okkur...og við sáum sko ekki eftir því...við hittum jim, natalie, will, john og fleira fólk úr deildinni og við dönsuðum og dönsuðum og dönsuðum....það var frábær þjóðlagahljómsveit að spila og alltaf á undan hverjum dansi var kona sem kenndi öllum réttu danssporin....allir voru jafn lost fyrst en svo var þetta ekkert mál....þegar maður var byrjaður að dansa þá gat maður bara ekkert hætt, sama hvað manni var orðið heitt og þreytt....þetta minnti mig eiginlega á orkudansinn í púlsinum...algjört púl en orkugefandi fyrir líkama og sál...húrraaa....ég svaf út í dag...og þarf að farað lesa núna.....sampai nanta over&out...

föstudagur, október 21, 2005

beljur á hlaupum....
þær eru hressar beljurnar hér fyrir utan gluggann minn...sá þær á harðahlaupum yfir túnið áðan...ég sem hélt að það gerðist bara á vorin þegar þeim er sleppt út....jemmerí....ég fór í zen hugleiðslu á miðvikudagskvöldið...kennari í skólanum og zen-búddisti í 20 ár fræddi okkur ca. 15 manna hóp af ólíkum háskólanemum um zen hugleiðslu í the chaiplancy center....það er fyndinn staður....þar er salur fyrir lútherskar guðsþjónustur, salur fyrir kaþólikka, búddista hugleiðsluherbergi, gyðingasalur, múslimasalur....allir saman í sátt og samlyndi....mjög góður andi þarna inni....og amk tvö píanó...planið er að tékka á hvort maður megi ekki koma og spila ef salurinn er ekki upptekinn....o mæ god ég er að hlusta á nýja sigurrósardiskinn í tölvunni...sem er eina hljómgræjan mín...og ég verð að hætta að hlusta það er ekki hægt að hlusta á svona tónlist í svona lélegu soundi....hljómar bara hræðilega....oj!....ahhh....þetta var betra....lali puna meikar alveg tölvusoundið....eníveis...ég var að tala um hugleiðsluna...ég hef einu sinni áður farið í hugleiðslu fyrir utan þá hugleiðslu sem fylgir jógatímum og það var bara allt allt öðruvísi...þá leiddi búddamunkskonan okkur á ákveðnar hugsanir og við kyrjuðum möntrur á meðan....og vorum yfirleitt með lokuð augun....zen-hugleiðsla er allt annað...maður á semsagt að sitja í góðri stöðu og snúa að vegg, vera með opin augun! og horfa á vegginn...reyna bara að tæma hugann en leyfa samt þeim hugsunum sem koma upp að koma, án þess að leyfa þeim að dvelja...horfa bara hlutlaust á þær og leyfa þeim að fljóta í burtu aftur, og enginn munkur að segja manni hvað eða hvernig maður á að hugleiða....í þessum fyrsta tíma fór eiginlega allur tíminn í kynningu og útskýringar og við hugleiddum bara í 10-15 mínútur....en það hafði áhrif....ótrúlegt....bara það að sitja og góna á vegginn í rólegheita hugleiðsluherbergi með reykelsi í 10 mínútur lét mig vera alveg ofur-afslappaða þannig að ég gæti sofnað en á sama tíma var ég svo full af orku að ég hefði líka getað farið út að hlaupa....hann mælir semsagt með því að maður geri þetta á hverjum degi...þó það séu ekki nema 10 mínútur í senn....jebb þetta var mjög áhugavert og skemmtilegt og fólkið þarna virtist einmitt líka vera það...vonandi fæ ég að kynnast þeim betur...Uli hin þýska, sem er með mér í skólanum kom með mér í þetta og við vorum báðar alveg að fíla þetta....fannst soldið skrýtið fyrst að eiga að hugleiða með augun opin en það meikar sens því ástæðan fyrir því er sú að það á að gera það auðveldara fyrir mann að koma hugleiðsluástandinu yfir í daglega lífið...þar sem við erum einmitt yfirleitt með augun opin...í næsta tíma ætlar hann að kenna okkur walking-meditation....spennandi að sjá hvernig það verður...í gærkvöldi eftir tíma í environmental decision-making settumst við Uli, Ingmar hinn þýski og Aurora hin spænska niður á skólabarinn til að kjafta....og upp kom snilldarhugmynd....Ingmar stakk upp á að við myndum hittast og brainstorma um hugmyndir fyrir Phd-verkefni sem við gætum unnið saman í hópum og fengið styrki frá EU til að gera....ég var eiginlega alveg hætt að hugsa um að gera doktorsverkefni...en ef ég fengi tækifæri til að vinna að einhverju snilldarverkefni með snilldarfólki og fá snilldarstyrk til þess...þá væri ég sko alveg til í það...hlakka til að sjá hvað kemur útúr þessu....jebbserí....ég er mjög ánægð með allt þetta fólk sem er með mér í skólanum....mér er einmitt boðið í afmælispartí í kvöld hjá fólki sem ég hef aldrei hitt...haha...það er semsagt fólk sem er að skrifa phd verkefni í deildinni og þau ákváðu að bjóða bara öllum post-grad nemum í deildinni í partí....við erum ekki svo mörg....ógó næs af þeim....wellio smellio verð víst að fara að lesa...þetta verður busy helgi svo ég verð að nýta tímann núna....partí í kvöld, ferðalag til Chester í fyrramálið og fram á kvöld, tónleikar annað kvöld....lesa lesa lesa á sunnudaginn....góða skemmtun á airwaves kæra fólk sem er svo heppið að vera þar um helgina....sampai nanta over&out...

þriðjudagur, október 18, 2005

tíminn líður hægt...
ótrúlegt hvað tíminn er skrýtið fyrirbæri...stundum finnst manni hann fljúga áfram og svo er eins og hann standi í stað....mér finnst eins og það sé vika síðan á mánudaginn en hann var í gær! jammerí....það er svosem ekki margt búið að drífa á daga mína síðan síðast....ég vaknaði snemma á laugardagsmorguninn til þess að mótmæla....ég og aurora, helen og michaela erum semsagt í people and planet hóp skólans og hópurinn stóð fyrir mótmælunum...þetta var nú ekkert erfitt..eina sem ég þurfti að gera var að standa í einn og hálfan tíma og halda á borða sem stóð á Lancaster University does not support freedom of speech....málið er semsagt það að fyrir einhverjum mánuðum síðan komu hingað á háskólasvæðið fulltrúar frá stóru fyrirtæki sem framleiðir vopn sem drepa lítil börn í miðausturlöndum...6 háskólanemar mótmæltu veru þessara manna hér á friðsamlegan hátt...svo voru þeir handteknir og kærðir...meikar þetta sens í þjóðfélagi þar sem málfrelsi á að vera til staðar? nei, það held ég ekki....nánar: breska ríkisstjórnin vill ekki eyða peningunum sínum í að veita þegnum sínum góða menntun...frekar vilja þeir senda unga menn til írak að skjóta....háskólarnir eru þess vegna í peningavandræðum....þá segir ríkisstjórnin: hei það er fullt af stórum fyrirtækjum sem vilja gefa ykkur peninga....og háskólinn segir ókeiiii....en það sem stóru fyrirtækin vilja fá í staðinn er t.d. gott orðspor...þessvegna komu vopnaframleiðendurnir hingað til þess að vera virðulegir....þeir vilja líka fá málfrelsið...þessvegna voru mótmælendur handteknir fyrir að mótmæla því að háskólinn leyfði vopnagaurunum að þykjast vera góðir og virðulegir....háskólasamfélagið hérna er orðið mjög hrætt við áframhaldið....hvað verður um akademíu sem á að snúast um að rannsaka og gagnrýna þegar stóru fyrirtækin vilja bara gefa þeim pening sem eru að rannsaka "réttu" hlutina og komast að "réttu" niðurstöðunum? dæmi sem ég heyrði í gær er um gaur sem var hér í doktorsnámi á styrk frá stóru fyrirtæki..hann komst í rannsóknum sínum að einhverju neikvæðu um vörur sem fyrirtækið framleiðir...svo þeir hættu að styrkja hann og nú eru ekki miklar líkur á að hann geti lokið doktorsverkefninu....á þetta að vera ásættanlegt? hmmm....ég er ansi hrædd um að þetta sé að verða stefnan víða í heiminum....big corporation vill fá að ráða öööölllu.....og ríkisstjórnir vilja ekki eyða peningum í góða menntun....já þetta var semsagt það sem ég var að mótmæla....svo er ég bara búin að vera að lesa og lesa og lesa....og fara í bíó...sá mynd sem heitir Yes....mjöööög góð...og aðra sem heitir me and you and everyone we know.....mjög góð líka....wellio smellio....ætlað kíkja á sylvíu nótt fyrir svefninn...sampai nanta...

laugardagur, október 15, 2005

gleði gleði gleði!
já kæru lesendur ég vill biðjast velvirðingar á þeiri yfirdrifnu dramatík og reiði sem átti sér stað í síðustu færslu...ég ákvað bara að láta það flakka á íslenskunni þar sem tjáningin á vandamálinu á enskunni þurfti að vera öllu siðfágaðri...getit át off the system skiluru? eníveis...það getur sko engin kattarlúser spillt minni einstöku gleði gleði gleði og ofurjákvæðni kæra fólk...ó nei...en djöfull er þetta lið samt steikt maður lifandi...ég talaði við chris áðan og hann virtist vera mjög hneykslaður á því að mér væri illa við kattarhár í matnum mínum...samræðan endaði á því að mér fannst ég næstum vera að biðjast afsökunar..og hann alveg: its fiiine....og ég bara: kúkúúú? er einhver heima?...yppti bara öxlum og fór út..end of story mér er skítsama...bara gott að vera búin að koma þessu útúr systeminu og allavega reyna að redda þessu...eeeeníveis...nenni sko ekki að eyða meira púðri í þetta því að: lífið er yndislegt! segðu! eftir allan bömmerinn fannst mér að ég þyrfti á gleðisprautu að halda svo ég skellti mér í bæinn og keypti mér hjól...jibbííí! fór á stað sem heitir pedal power og er svona hjólaendurvinnlsustöð...fólk fer þangað með ónýtu hjólin og þeir smíða ný hjól úr pörtunum...fékk þetta líka ofurfína dömuhjól fyrir skitin 35 pund...hún er rauð á litin og heitir rosie og hún er sko dama...þegar ég steig upp á hjólið og sveif í burtu gat ég ekki annað en skælbrosað og ískrað af ánægju inní mér..og that's it! dagurinn orðinn góður aftur! flaug heim frjáls eins og fuglinn og gaf öllum strætóbílstjórum fokkjúmerki (gerði það ekki í alvöru bara í huganum..ég er ekki dóni sko..)á leiðinni því að ég þarf ekki á þeim að halda lengur...og hvað ég naut þess í kvöld að fara á bestu tónleika ever! og þurfa ekki að flýta mér heim með síðasta strætó....tomas truax er maður frá nýju jórvík og hann er meiriháttar snillingur...hann býr til sín eigin hljóðfæri sem heita t.d the hornicator og siterspinster....og þvílíkt og annað eins..ég get ekki líst því....því miður...en mér fannst ég bara vera ástfangin þvílík var snilldin... á undan honum spiluðu þeir martin chitty sem var mjög góður...spilaði meðal annars lagið letters from galgate...uppáhaldið mitt..hver veit nema ég skrifi soleis einhverntímann..og svo var það algjör lúðagaur sem var breskur en söng með amerískum hreim..glaaaatað! en two out of three er gott....tomas truax tomas truax.....ef þið hafið einhverntímann tækifæri á að sjá'ann...thomastruax.com eniveis aftur...ég þarf víst að farað lúlla því ég þarf að vakna snemma á morgun og farað mótmæla....er búin að ákveða að ég ætla að læra að mótmæla meðan ég er hér svo ég geti komið heim og kennt hinum að mótmæla...segi ykkur meira frá því á morgun...nighty night...búbbalalahúúú...

föstudagur, október 14, 2005

Alla ketti í frumskóginn!
Risastór appelsínugulur kattarfjandi sem kann ekki að halda í hárin sín er að gera líf mitt glatað í dag...ég hef aldrei haft neitt mikið á móti köttum áður...og ég hélt að ég gæti alveg búið með ketti...þau heimili sem ég hef komið inná og hafa innihaldið kött hafa bara verið venjuleg heimili...ekkert verri en önnur hús...en hér er sagan önnur....Jake, svo nefnist appelsínugula skrímslið, fer inn og út um gluggann inni í eldhúsinu okkar.....og eldhúsglugginn er beint fyrir ofan stærsta hlutann af eldhúsbekknum okkar...þar sem maður mundi venjulega smyrja brauðið sitt og skera niður grænmetið og soleis....Jake stekkur semsagt upp á eldhúsbekkinn og út um gluggann og svo aftur inn um gluggann og niður á eldhúsbekkinn...og hvað gera kettir úti? leika sér í drullupollum og éta mýs?...ég veit það ekki....allavega finnst mér ekkert alltof kósí að vita af kattarsýklum og bakteríum á eldhúsbekknum....stundum þegar Jake er þreyttur eftir að hafa leikið sér úti og það er fallegt viskustykki eða brauðbretti á eldhúsbekknum ákveður hann að leggja sig þar...svo stendur hann upp og eftir hann liggja sirka 578 kattarhár á eldhúsbekknum...svo þegar hann er búin að vera á eldhúsbekknum stekkur hann yfir á matarborðið (það sem maður mundi setjast við og borða matinn sinn af) og leggur sig kannski aðeins þar....eflaust hefur hann lagt sig þar mjög oft því að þegar ég var að reyna að þrífa þetta að því er virðist 300 ára gamla matarborð, vildi skíturinn bara ekki fara...sama hvað ég þurrkaði og skrúbbaði með sápu...alltaf var tuskan brún eftir á....fyrir ofan matarborðið er svo stiginn upp í stofu...og í stiganum leggur Jake sig líka...hár hár hár og meiri hár....og eigandi Jakes og hinir íbúarnir hér virðast ekki vita hvað ryksuga er....þegar Jake er búin að fá nóg af eldhúsinu fer hann upp í stofu....þar eru tveir tveggja sæta og einn eins sæta sófar....Jake finnst gaman að liggja í þeim öllum..og allstaðar á þeim öllum...þegar ég kom hingað var ekki einn staður á öllum sófunum sem var ekki útataður í kattarhárum...ég ryksugaði sófana og síðan þá er Jake bara búin að ná að ata tveggja sæta sófana út í hárum...veiiiii! ég get sitið í eins sæta sófanum þegar ég horfi á sjónvarpið....æðislega kósí!!! niðurstaðan er: hegðunarvenjur Jakes hafa gert það að verkum að ég nota pínulítinn eldhúsbekk við hliðina á eldavélinni til að skera niður grænmetið mitt...ég borða uppi í herbergi við skrifborðið mitt, mér mundi ekki detta til hugar að bjóða vinum mínum í mat, ég reyni að forðast að sitja inni í stofu og ef ég geri það er ég alltaf að passa mig að koma ekki við neitt nema eins sæta sófann minn...og ég borga leigu fyrir þetta! jibbíííí!!!! ég hringdi í hana fröken Caroline Day, leigusalann minn áðan og því miður þá er alls ekki hægt að rifta leigusamningnum...nema ég finni annan leigjanda í staðinn....vonandi gerist það en ef ég er raunsæ þá er vonin ekki mikil...hver vill búa hér?...fröken Caroline er búin að tala við Chris besta vin hans Jake og segja honum að nýji útlendingurinn sé óánægð með köttinn...og greyið Chris er alveg hissa....í sex ár hefur enginn annar kvartað yfir greyið Jake....svo að niðurstaðan er: ég fæ að öllum líkindum að búa með Jake áfram og nú fæ ég líka að búa með Chris og bestu vinkonu hans Sophie (kanadíska kellingin í næstsa herbergi) sem eiga eftir að hata mig fyrir að vera vonda manneskjan sem kvartar yfir grey Jake.....arggghhhhhh!!!!!!!!!! þessvegna segi ég: sendum alla þessa helvítis kattarandskota aftur í frumskóginn þar sem þeir eiga heima! hverjum í andskotanum datt í hug að kettir ættu að búa inni í húsum með fólki? ....ok þeir mega búa á bóndabæjum þar sem þeir halda sig inni í hlöðu og veiða mýs...en inni í borgum og bæjum eiga þeir ekki heima!!!! út með kattarhelvítisógeðið!!!!!!!!! annars er allt gott að frétta og mér líður rosalega vel....sampai nanta over&out

fimmtudagur, október 13, 2005

nýtt næturlíf....
skrýtið hvað margir fáránlegir hlutir breytast þegar maður flytur á nýjan stað....síðastliðin nokkur ár hefur mig annaðhvort ekki dreymt neitt eða ekki munað draumana mína nema einstaka sinnum....síðan ég kom hingað hefur mig dreymt brjálað aksjón á hverri einustu nóttu..á meiraðsegja erfitt með að vakna stundum því atburðarásin er í fullum gangi...ennþá skrýtnara að fyrstu vikuna eða svo var mig bara að dreyma vonda drauma....nikki badlove benti mér á að það gæti verið að þessir vondu draumar væru einskonar hreinsun...og ég held það gæti verið rétt....svona hreinsun á undirmeðvitundinni....fá allt sem ég hef hræðst lengst inní mér upp á yfirborðið gegnum draumana...ógó sniðugt...en mig er semsagt hætt að dreyma vonda drauma núna....mig dreymdi í gær og fyrradag drauma sem ég held ég geti túlkað á sama hátt...þetta voru ábendingar um eitthvað sem ég er ekki dugleg að gera og þarf að bæta mig í....í báðum draumunum fór ég og sótti eitthvað sem mig langaði í án þess að hika hið minnsta....í daglega lífinu mínu geri ég það ekki....ég á það til að hika svo mikið að ég missi af því sem ég vildi fá...þetta hik mitt er örugglega bara feimni og hræðsla en á yfirborðinu er það ég að hugsa mig ógeðslega lengi um hvort þetta sé í raun og veru það sem ég vill...ég tel sjálfri mér semsagt trú um það að ég viti ekki hvað ég vill og þess vegna eigi ég ekki að fara að ná í það því að kannski langi mig ekkert í það í raun og veru...vá máttur míns hugar til að blekkja sjálfan sig er óendanlegur...en þá er gott að dreyma svona mikið til að fletta ofan af blekkingunni...hmm.....en í nótt dreymdi mig bara fyndinn og skemmtilegan draum! haha...ég fékk að fara á airwaves á tónleika með ælu....og það var mat manna á þessum tónleikum að þeir hefðu bara aldrei verið betri...málið var sko að þeir voru ákveðnir í að vera bestir af öllum....þeir þyrftu að vera betri til þess að eitthvað mundi gerast svo þeir urðu bara betri og roooosalega góðir...svo eftir tónleikana vildu 12 tónar alveg endilega taka diskinn þeirra (sem þeir voru búnir að klára) í markaðssetningu og dreifingu....það ógeðslega fyndna við þennan draum var að tónleikarnir enduðu á því að kamilla kom upp á sviðið og söng besame mútsje! hahahhaa ég sprakk úr hlátri þegar ég vaknaði....en í draumnum var þetta eðlilegasti hlutur í heimi...þannig að æludrengir ef þið takið mark á minni einstöku berdreymni....klárið að taka upp diskinn fyrir airwaves og æfið ykkur eins og motherfuckerar! og kamilla....farðu að æfa þig að syngja besame mútsje og sláðu í gegn! hahahaa! jæja nóg um mitt nýja næturlíf....þarf að fara að taka þátt í daglífinu og drulla mér á bókasafnið...sampai nanta...

þriðjudagur, október 11, 2005

nýjar víddir....múhahahhaaaa!
jemmeríjú það eru sko nýjar víddir hér út um allt...ég var að koma af brilliant skrýtnum tónleikum....tónlistarstefnan var stefna sem ég hef ekki haft mikinn áhuga eða ánægju af en í kvöld fékk ég að kynnast nýjum víddum í þessari tegund tónlistar....ok tegundin var semsagt hardkor pönk brjálað þungarokks öskur dæmi...u know what i mean? þegar ég hef heyrt svona tónlist áður hefur hún ekki heillað mig...ég heyri bara öskur og kaos og hávaða sem verður pirrandi og óþægilegur eftir smá tíma....en...í kvöld..nýjar víddir....fyrri hljómsveitin sem ég heyrði í spilaði í korterog öll lögin þeirra voru innan við 40 sekúndna löng...þau voru öskur, kaos og læti en mér fannst í fyrsta skipti að ég gæti notið þess að hlusta á svona tónlist vegna þess það kom aldrei að því mómenti þar sem þetta var orðið óþægilegt eða pirrandi...svo þetta var bara fyndið og skemmtilegt...næsta hljómsveit var frá berlín...og þeir gerðu það sem þjóðverjar eru þekktir fyrir: ofurnákvæmni og skipulögð vandvirkni út í gegn....ég gapti af aðdáun yfir hljóðfæraleiknum..trommarinn var bara ótrúlegur...og það var ótrúlegt hvað þeir voru hárnákvæmlega samtaka að gera svona hraða og brjálaða tónlist....svo að í annað skiptið á ævinni á sama kvöldi var ég virkilega að njóta þess að hlusta á þessa skrýtnu tegund tónlistar....jebb þetta var tónlistarhornið mitt í dag...ég fór með helen og hinni spænsku auroru...tilviljun eða ekki tilviljun að þær eru einu manneskjurnar af öllu þessu fólki sem ég er búin að kynnast í deildinni sem voru í heimspeki áður en þær komu hingað og þær eru þær manneskjur sem ég konnekta best við...heimspekingar eru frábært fólk...það er mín skoðun....þetta eru búnir að vera busy dagar í dag og í gær....var í tímum báða morgnana og bæði kvöldin....allt mjög góðir kúrsar en sem betur fer eru tveir þeirra betri en hinir tveir svo ég á auðvelt með að taka ákvörðun um hvaða kúrsa ég ætla að taka....niðurstaðan er semsagt sú að ég ætla að taka social theory and the environment sem er önnur ný vídd fyrir mig þar sem ég hef bara gert heimspeki áður og félagsfræðilega víddin er ný og spennandi sýn á umhverfismálin...svo ætla ég að taka environmental decision-making sem er líka ný vídd því þessi kúrs snýst um að læra hvernig er best að taka ákvarðanir í opinbera umhverfisgeiranum...ég hef lært að velta umhverfismálum fyrir mér áður en ekki hvernig maður á að taka praktískar ákvarðanir....fjórða og síðasta nýja víddin í bili er að vera hætt að reykja...ógó skrýtið að langa ekki lengur í sígarettu...og það er ekki einu sinni liðin það langur tími..bjóst ekki við þessu...ég fékk mér semsagt þrjár sígarettur síðasta fimmtudagskvöld eftir viku af non-smoking...ég naut fyrstu sígarettunnar alveg í botn en hinar tvær voru ekkert spes... daginn eftir fann ég geðveikt fyrir því í lungunum að ég hefði gert eitthvað ekki-gott...maður finnur ekkert fyrir því þegar maður reykir alltaf því þá er þetta vonda lungnaástandið bara eðlilegt ástand fyrir manni...svo um kvöldið var ég á þessu pöbbarölti og ákvað að fá mér bara eina sígarettu með bjórnum....og sú sígaretta var ekki neitt góð...miklu meira vond heldur en góð svo ég drap í henni hálfri....sem ég bjóst alls ekki við...svo að eftir það hefur mig meira ekki-langað í sígarettu heldur en mig hefur langað....jebberíhó þannig að ég held ég sé í alvörunni hætt að reykja....sem er ógó skrýtin ný vídd....eiginlega er þetta svipað eins og þegar ég hætti að borða kjöt (fyrir utan the occasional hangikjöt ég veit...) eftir smá tíma þá hættir manni að finnast kjötið/sígarettan vera eitthvað girnilegt....fer meira að vera eitthvað sem ég veit að mér á eftir að líða illa af....ekkert mál krakkar mínir....fyrir guggu pál....jebberíhó lífið er gott og gaman...mér fannst það ekki í smástund í gær en svo hitti ég jo á msn og hún lét mig hlæja ýkt mikið og það lagaði allt..svo lexía dagsins er: ef þið eruð eitthvað blue...finnið þá bara eitthvað til að hlæja að og þá verður allt betra....sampai nanta my friends...

sunnudagur, október 09, 2005

i'm a guru on the mountain....
fór ég í fjallgöngu í dag eða hvað maður! við lögðum af stað klukkan 10 í morgun og vorum í göngu til 3 í dag....og ég var í strigaskóm... þeir eru komnir í þvottavélina núna þar sem við þurftum að ganga í gegnum drullusvað nokkrum sinnum á leiðinni....löbbuðum upp á lítið fjall eða stóran hól....fer eftir því hvernig á það er litið...og sáum stórkostlegt útsýni yfir allt Lancashire...jibberíjei! nokkrir úr deildinni minni skipuleggja svona göngur einu sinni í mánuði svo ég ætla að kaupa mér gönguskó og verða professional hiker....næst förum við í helgarferð að Hadrian's wall sem er risastór og súperlangur hlaðinn veggur sem englarnir byggðu víst einhverntímann í den til að halda brjáluðu skotunum í öruggri fjarlægð...mjög gaman...fínt að vera í svona litlum gönguklúbbi með fólki sem hægt er að tala við um mjög áhugaverða hluti á leiðinni... í gærkvöldi fór ég á tónleika á campusnum sem lulums (lancaster university live and unsigned music society....) skipulagði...sá tvær bara nokkuð góðar hljómsveitir þar..lulums heldur tónleika á hverju laugardagskvöldi, hefur lifandi tónlist á grad bar öll fimmtudagskvöld og heldur líka open mic nights einu sinni í viku...nokkuð gott..ef þeir halda áfram að hafa svona frambærilegar hljómsveitir eins og í gær líst mér bara mjög vel á þetta...svo ætluðu ég og helen að fara í bæinn á aðra tónleika sem feedback skipulagði en við klúðruðum því....helen er nebblega soldið lík mér...heimspekingur sem er dáldið utan við sig...við biðum eftir strætó frá campusnum niðrí bæ og vorum á fullu að kjafta...kjöftuðum svo mikið að við fórum í vitlausan strætó og föttuðum þegar við vorum komnar heim til okkar í galgate að við tókum strætó í vitlausa átt....næsti strætó frá galgate til lancaster fór ekki fyrr en klukkutíma seinna svo við enduðum á því að fara heim afar snemma í stað þess að fara á tónleikana....ég sagði við hana í gærkvöldi að ég væri viss um að ástæðan fyrir því að við tókum vitlausan strætó væri örugglega að tónleikarnir væru drullulélegir og við hefðum bara séð eftir því að hafa borgað okkur inn...vegna þess að allt sem gerist það Á að gerast... og viti menn....vinur hennar helen fór á þessa tónleika og þeir sukkuðu feitt! svo við vorum bara mjög ánægðar að hafa misst af þessu og farið snemma að sofa í staðinn...þurftum alveg á því að halda í dag þar sem "göngutúrinn" var aðeins lengri og meiri en við reiknuðum með....svo lærdómur dagsins enn og aftur: ALLT ER EINS OG ÞAÐ Á AÐ VERA....hversu lítilvægt sem það er.....wellio ég ætlað farað prjóna trefil svo mér verði ekki kalt...sampai nanta...

laugardagur, október 08, 2005

gugga sukk er enn á lífi....
jamm og jæja gott fólk..viðburðarríkir dagar þessir tveir síðustu..allavega miðað við dagana þar á undan haha...ég fékk loksins að fara út á meðal fólks og eiga í góðum samræðum..jeij! á fimmtudaginn var semsagt wellcoming event hjá deildinni minni...það byrjaði klukkan fimm og ég var fashionably late..helvítis strætóinn minn ákvað að vera seinn í eina skiptið sem það skipti máli að hann væri á réttum tíma...svo þegar ég kom inn voru allir búnir að kynna sig, nemendur og kennarar...svo kynntu kennararnir fyrir okkur hvernig allt virkar í deildinni og hvaða kúrsar væru í boði og soleis..síðan eftir það var svona wine reception...sem var voða fínt, ég var að kjafta við þá neil, matt og jim mestallan tímann, neil og matt eru að byrja í sama prógrami og ég en jim byrjaði í fyrra...indælisfólk alveg hreint....kjaftaði líka soldið við aðalkennarann minn John O'Neil, hann sagðist næstum því hafa komið í tjaldbúðirnar á Kárahnjúkum í sumar..en komst ekki....spáið í því...virtir umhverfisheimspekingar frá öðrum löndum vilja koma og mótmæla en við sem erum íslendingar gerum ekki skít....enginn af heimspekingunum heima létu sjá sig að mótmæla...samt hafa margir þeirra skrifað um umhverfismál....undarlegt hvað við erum eitthvað antimótmælendur....aníveis..þegar vínið var búið ákváðum við nemendurnir að fara á Grad bar sem er barinn sem postgraduate students eiga á campusnum...við sátum þar heillengi og kjöftuðum saman og ég kynntist fullt af fólki. neil er frá cornwall, matt frá blackburn, svo voru það úlí...(veitiggi hvernig á að stafa nafnið hennar) og ingmar frá þýskalandi, micheala frá ástralíu, maia frá spáni, helen er frá london, jodie er héðan, tom er héðan...og svo voru einhverjir fleiri sem ég man ekki nöfnin á...allt alveg frábært fólk á sömu bylgjulengd og ég..auðvitað...þar sem þau eru að læra það sama... aníveis þetta var allt voða civilized....þar til að jodie hin villta brútal norðurenska tjelling dró mig með sér niðrí bæ...við fórum á the hustle sem er mjög fyndinn staður með góðri funk tónlist til að tjútta við...mjög gaman...svo fórum við á the revolution sem er keðjubar sem ég hata....á þessum punkti voru jodie og vinir hennar búin að krefjast þess að fá að bjóða íslendingnum upp á drykk...iiii....jebberíí....og ég ekki búiin að bragða áfengi í næstum tvær vikur...svo þolið etv. ekki upp á sitt besta....allavega endaði kvöldið á því að ég fór að rífast við ógeðslega dónalega dyraverði á revolution! ahahah....þeir voru alveg skítlegir þessir gaurar svo ég lét þá bara heyra það...hmhmhm....í gærmorgun vaknaði ég við að brunakerfið var farið í gang, poul hin gríski meðleigjandi að rista brauð....hræðilegasti máti til að vakna á svona degi.....ég hélt að hausinn á mér myndi springa....lá hér heima í mjög slæmu líkamsástandi....þar til klukkan 6 því við IEPPP nemendurnir vorum búin að mæla okkur mót á barnum....mjög gaman....ég var ekkert alltof ánægð með hana jodie vinkonu mína...þegar ég kom var hún búin að segja öllum dyravarðarsöguna mína....alger óþarfi alveg hreint...en hei ég er gugga sukk og ég er stolt af því....tók samt guggu gúrú á þetta í gærkvöldi og hélt drykkjunni í lágmarki...við vorum nebblega að fara á alternative pub crawl um allan bæinn ásamt fullt af öðrum post grad students...sem var mjög gaman og ógó sniðugt því þá fékk maður bara guide til að benda sér á alla bestu staðina til að fara á....mjög gaman..við enduðum á the gregson sem að mér fannst bestur....þar er bæði bar niðri og risastórt dansgólf uppi með mjöög skemmtilegri tónlist....svo við enduðum á tjútti með mexikóskum og brasilískum strákum sem voru sko með dansmoovin aaalveg á hreinu haha...jemmeríhaa...núna er ég að fara á fund hjá the live music society í skólanum og þaðan verður farið á tónleika í bænum á vegum feedback...interesting music fólksins....ég hlakka mjög til...ég og helen ætlum báðar að fara...við deilum áhuga á tónlist....frábært að hafa einhvern sem nennir með manni á svona dótarí...svo í fyrramálið förum við í the IEPPP walk..sem er einhver gönguferð á vegum deildarinnar á einhverja fallega staði hér í nágrenninu...jibbkibb....ég þarf að drulla mér af stað..verð of sein á fundinn ef ég fer ekki á baka kvöldmat núna.....diskur dagsins er martha weinwright..snillingur....sampai nanta...

þriðjudagur, október 04, 2005

lalli pönk er hættur að reykja...
jebb gott fólk..má maður ekki segja að maður sé hættur að reykja þegar þrír dagar eru liðnir án nikótíns? ....það er lítill golden virginia pakki hér við hliðina á mér sem ég er ekki búin að snerta síðan á laugardaginn...og þá fékk ég mér EINA sígarettu...gott fólk...ég hef fundið hina fullkomnu leið til að hætta að reykja...nikótínplástur..nebb....nikotínstautur...nebb....nikotín smikotín...maður hættir ekki að reykja með því að dæla í sig nikótíni...neeeeeiiiiii.....það sem maður gerir er að fara á ofurgóða markaðinn í lancaster og kaupa sér: FARMERS HONEYBLEND TRADITIONAL HERBAL SMOKING MIXTURE, a satisfying blend of rich, mild, aromatic herbs, matured in honey and fruit juices, to give a cool, fragrant smoke...TOBACCO FREE-NICOTINE FREE! hahaaaa!!! ég rakst á þetta á markaðnum á bás sem seldi allskonar dularfullt dót fyrir fólk sem reykir ólöglegar jurtir...þessi blanda er semsagt sýnist mér markaðssett fyrir fólk sem vill reykja jónur án þess að reykja tóbak...ég held að þeir bændur ættu líka að markaðsetja þetta fyrir fólk sem vill hvorki reykja ólöglegt né tóbak....ég meina það! ef þetta væri í alvöru markaðssett fyrir fólk sem vill hafa kost á að hætta að reykja tóbak en halda samt áfram að reykja....bændurnir myndu örugglega græða fúlgur! spáið í því ef allt nikótín og tóbak yrði tekið útúr sjoppunum og þetta sett í staðinn....þvílíkt sem það myndi spara heilbrigðiskerfinu pening...en greyið tóbaksframleiðendurnir mundu náttlega tapa og það má náttlega ekki...arghhg! þetta er það sem pirrar mig við heiminn í dag...það snýst allt um að græða peninga fyrir einhverja stórfyrirtækjafábjána....í stað þess að allt snerist um hvað væri best fyrir hag og heilbrigði almennings þá snýst allt um að fá almenninginn til að kaupa eitthvað óhollt og ógeðslegt drasl svo að einhverjir gaurar geti leikið sér með peningana okkar...djöööö! mér finnst geggjað að hér í lancaster get ég að mér sýnist keypt allt sem mig vantar á markaði af litlum kaupmönnum...ég þarf ekki að fara í marks&spencer til að kaupa grænmeti, kjöt og fisk...fæ það allt á markaðnum...á bara eftir að finna mjólkur og brauðsölu og þá er ég fín...svo er fullt af svona organic og heilsubúðum líka...geggjað mar....ég er líka búin að finna hugleiðsluhóp sem hittist alltaf á mánudagskvöldum..ætla að kíkja á það næsta mánudag..svo eru endalaus tækifæri innan háskólasamfélagsins til þess að ferðast um allt breta og skotaland...það eru tvö svona hiking og backpackers félög sem fara í fullt af ferðum og svo fer graduate college félagið sem ég er sjálfkrafa meðlimur í í ferðalög á tveggjavikna fresti.... þannig að: gugga gúrú verlsar bara við bóndann...reykir bara herbal smoke öðruhverju...stundar hugleiðslu....fer upp á fjöll og firnindi....já og fer vonandi á jóganámskeið...er búin að finna eina jógastöð sem ég þarf að tékka á....svo fer ég náttlega líka á tónleika og soleis...er búin að finna aðal alternative music klúbbinn í bænum....jeij! rosa er þetta sætt eitthvað...oj....ég held að gugga sukk þurfi að gubba á guggu gúrú....en hei...bráðum verð ég 26 ára....og þá er praktískara að velja gúrú en ekki sukk....nema kannski við einstök tækifæri..hahaaaa! gugga sukk er ekki dáinn..ekki hafa áhyggjur....vá ég hef miklu meira að segja en ég held að þetta sé nú þegar orðið vibba langt blogg sem enginn hefur tíma til að lesa...svona er að hafa engan að tala við nema tobba tölvu....munnræpan bara hættir ekki....eníveis...sampai nanta og góða nótt með sylvíu nótt....ætla að horfa á einn þátt fyrir svefninn...djöfull er ég að fíla þetta netsjónvarp...endilega látið mig vita ef þið vitið um fleiri soleis...bæbbiræbb...

sunnudagur, október 02, 2005

klukk!
það er víst búið að klukka mig tvisvar...af nikki og rjúpunni..það þýðir að ég á að telja upp hva 5 staðreyndir um sjálfa mig...dj! here we go!
1. ég er haldin sjúkdómi sem heitir ofurjákvæðni...það versta við þennan sjúkdóm sem er annars mjög góður, er að ofurjákvæðnin getur stundum trampað neikvæðu hugsanirnar svo langt niður að þær safnast saman í haug og springa á endanum í einni stórri kúkasprengju! en þar sem ég er ofurjákvæð finnst mér það bara allt í lagi og þess virði því alla restina af tímanum fæ ég að vera ofurjákvæð:) jeij!
2. ég er nýlega flutt til englalands og finnst erfitt skrýtið og gaman að vera alltaf alein....erfitt af því ég er vön því að vera alltaf í kringum fólk..skrýtið af því að þögnin er svo skrýtin og gaman af því að þá hef ég tíma til að vera með sjálfri mér og góðum mönnum eins og nick drake sem er hjá mér núna að syngja undurfallega....
3. ég elska að liggja í grasinu...eða á klettinum eða fjallinu eða bara öllu því sem heitir náttúra og býr yfir magnaðri orku og kyrrð..ég öfunda t.d. ógeðslega kindina sem liggur í grasinu hérna fyrir utan gluggann minn..
4. ég er hæfileikarík....í raun hef ég svo marga hæfileika og möguleika að það hefur reynst mér erfitt að ákveða hvern þeirra ég á að velja að eyða tíma mínum í...ég hefði getað orðið læknir, lögfræðingur, píanósnillingur, verkfræðingur....en tilviljanirnar vildu að ég yrði heimspekingur...í bili allavega..
5. ég trúi og treysti á alheimsorkuna...hún er yndisleg, hún er allt og hún er innra með þér....og ég ætla að eyða meiri tíma með henni...með því að ganga í lancaster university hiking club og liggja í grasinu út um öll fjöll og trissur...og gera jóga á hverjum degi maður...ú je gúrúgugga says blessíó og klukk annaananas, sæbbarokk og rósaklikk........kluk klukk klukk klikk....

laugardagur, október 01, 2005

skrýtið líf...
ég er búin að eiga góðan og skrýtinn dag í dag. Vaknaði um 9 eða 10 leytið og ákvað að drífa mig til Lancaster að redda allskonar dótaríi eins og inniskóm og sængurfötum...rölti í strætóskýlið og stóð þar og beið með svörtu doppu húfuna mína á hausnum...allt í einu heyri ég einhvern segja "i like your hat" svo ég sný mér við og þá er komin einhver stelpa í strætóbiðina. henni fannst semsagt húfan mín voða flott og útfrá því fórum við að spjalla um daginn og veginn í biðinni og í strætó...hún er að læra religious studies and ethics og býr hinu megin við götuna...bauð mér að kíkja í kaffi einhverntímann, sem ég held ég geri kannski...fínt fínt sallafínt....svo var ég komin til Lancaster, stíg út úr strætó og það fyrsta sem ég sé er stórt hús sem stendur á market...ég þangað...og vá maður þetta var risastór markaður með öllu til alls..grænmeti, kjöt, fiskur, sængurföt, tóbak, inniskór...og allskonar drasl....svo þegar ég kem útúr markaðnum um aðra hurð og horfi yfir götuna, þá er þar annað hús sem stendur á market, svo ég fer þangað inn og þá er þar fullt af flottum gömlum fötum og drasli, geggjaðar gamlar vinylplötur og ég veitiggi hvað og hvað... svo rölti ég meira og þá er bara allt fullt af útimörkuðum....svo að niðurstaðan er: Lancaster er markaðabærinn...sem hentar mér mjööög vel! þegar ég var búin að kaupa allt nauðsynjadraslið fór ég heim í hádegismat og síðan beint aftur til Lancaster því ég var ekki búin að skoða nóg... og ég held ég rati bara ágætlega um bæinn núna, er búin að finna tvö bíó, æðislegt lífrænt kaffihús, retro bar sem mig langar að skoða, tvo tónleikastaði, samtök fólks sem heldur góða tónleika, yogamiðstöð....og náttlega allar búðirnar sem ég fer aldrei í...Það var soldið merkilegt að þegar ég kom inná lífræna kaffihúsið fór ég strax að skoða flyera og auglýsingar og þar var einn flyer frá einhverju liði sem var að tala um kárahnjúkahelvítið og hvað það væri hræðilegt og að við yrðum að gera eitthvað! killingiceland.com maður...mér leið ekki vel...auðvitað er frábært að það sé allsstaðar fólk sem er á móti þessu og vill gera eitthvað...en mér leið illa af því að ég skammaðist mín fyrir að vera partur af þessari klikkuðu þjóð sem vill drepa náttúruna sína....en svo fór ég upp á kaffihúsið og fékk mér te og þá var Björk á fóninum...þá leið mér aftur vel að vera partur af þessari klikkþjóð...jafnvægi....það er það sem þarf...ég held ég sé í ágætisjafnvægi en samt ekki einhvernveginn....maður er alltaf svo viðkvæmur þegar maður er svona aleinn í útlöndum....það að síðasti strætó frá Lancaster og hingað fari klukkan 10 og ég komist þá etv. ekki í bíó í kvöld eins og ég var búin að plana, er nóg til þess að ég verði ofurviðkvæm og vitlaus...skrýtið líf er það sem þetta er í dag allavega... það er þögnin sem er svo skrýtin þegar maður er svona aleinn, það er einhvernveginn líka alger þögn innan í manni og það er eins og maður verði alltaf að vera að gera eitthvað svo að þögnin verði ekki yfirþyrmandi...þessvegna ætla ég að fara í bíó á eftir...og ef að strætóinn ætlar eitthvað að vera að bögga mig þá tek ég bara taxa og segi fuckit! sampai nanta over&out... já og ef einhver hefur verið að reyna að ná í mig í gamla breska númerið mitt þá er það semsagt ómögulegt ennþá því ég gleymdi kortinu heima....fæ það í pósti vonandi á miðvikudaginn...en heima síminn hér er: 0044 1524 752359....

This page is powered by Blogger. Isn't yours?