<$BlogRSDUrl$>

sunnudagur, nóvember 27, 2005

helloio...mig kitlar...
ég er búin að eiga alveg hreint yndislega afslappandi helgi í leeds hjá brynhildi...kom þangað á föstudaginn og við fórum á bæjarrölt...hún sýndi mér allar second-hand búðirnar og ég keypti mér nokkrar flíkur....kominn tími til....ég tók ekki mikið af fötum með mér hingað og er búin að fá ógeð af þeim öllum...svo ég keypti mér tvennar buxur, tvær peysur og tvo boli, allt fyrir 30 pund! ég kann sko að finna réttu fötin á rétta verðinu...jibbí! um kvöldið elduðum við okkur dýrindis fiskrétt, kjöftuðum og gláptum á sjónvarpið og átum súkkulaði....á laugardaginn fórum við á meira bæjarrölt, skoðuðum rosa kósý hverfi og fórum á kaffihús...kvöldið fór aftur í eldamennsku og bíómynd og ís....mmmm....í dag áður en ég fór heim rákumst við svo á æðislegan stað þar sem var sunnudagsdjass í gangi og besta kaffi sem ég hef fengið í bretalandi og vöfflur....frábær endir á frábærri helgi....það var svo mega yndislegt að geta talað og talað og talað og talað...á íslensku! og við einhvern sem þekkir mig! þvílíkt sem við nutum þess! svo er það bara atp næstu helgi...svo ein helgi hér...og svo verð ég komin heim!!! fattaði það um helgina að það erum bara 3 vikur þangað til en ekki 4 eins og ég hélt! veiiii! ég fattaði ýmislegt fleira um helgina....ástæðan fyrir því að það eru búin að bætast á mig örfá kíló...afhverju ég er búin að vera að éta súkkulaði og snakk á hverju kvöldi....ég er svo vitlaus stundum....auðvitað er það vegna þess að ég hætti að reykja....algjör regla að þegar fólk hættir að reykja fer það að éta í staðinn....en núna þegar ég er búin að átta mig á þessu ætlað ég hér með að hætta að borða nammi því það er alveg jafn óhollt og sígarettur! og hana nú! en nú ætla ég að segja ykkur hvað fer mest í taugarnar á mér því að thelma var að kitla mig...
1. það fer í taugarnar á mér....vá þetta er soldið erfitt fyrir jákvæðu mig....þegar fólk er yfirborðskennt...þegar ég hitti fólk sem er á yfirborðinu get ég ekki átt í eðlilegum samskiptum við það....
2. neikvæðni fer mjög í taugarnar á mér....
3. það fer í taugarnar á mér hvað margt í heiminum stjórnast af algerri vitleysu eins og peninga og valdafíkn...
4. það fer í taugarnar á mér þegar fólk dæmir mig og aðra útfrá útliti, klæðaburði og svoleiðis yfirborði...
5. það fer í taugarnar á mér að jólin séu neysluhátíð en ekki gleði og ljósahátíð hjá svo mörgum...
jæja gott fólk þar hafiði það....sampai nanta og sjáumst von bráðar!

miðvikudagur, nóvember 23, 2005

Ísaland er best...
já maður lærir að meta alla góðu og gáfulegu hlutina við ísland þegar maður er í burtu...það sem er ofur gáfulegt og gott við ísland er að þar kunna menn að byggja hús og hita þau upp...bretaland hefur held ég alltaf átt við kalda vetrartíð að stríða...kannski ekki mikill snjór en samt alveg jafn mikill kuldi og heima...þeir þurfa að hita húsin sín með gasi og rafmagni sem er rosa dýrt en samt hefur þeim aldrei dottið í hug að einangra húsin sín almennilega...hvað er málið? eru þeir svona vitlausir? já veistu ég er ekkert frá því að þeir séu stundum soldið vitlausir...jafnvel núna þegar global warming er aðalvandamálið sem þýðir að bretarnir þurfa að endurhugsa orkunýtinguna sína dettur þeim ekki í hug að það er hægt að fara ýmsar leiðir til þess að spara orkuna..til dæmis með því að einangra húsin betur! en neeeiiii....stjórnvöldin hér eru svo vitlaus að það sem þeim dettur í hug til þess að leysa orkuvandann er að byggja fullt af nýjum kjarnorkuverum! frábær hugmynd!!!! þeir eru núna að reyna að sannfæra landann um að það sé í rauninni nauðsynlegt! við verðum að byggja kjarnorkuver því að það er eina lausnin á global warming vandanum! þetta kalla ég heimsku...pointið er að mér er kalt! hahaa, nú er ofninn í herberginu mínu búin að vera í fullum gangi í tvo tíma en samt er ég undir sæng að skrifa ritgerð....kósý....ég er semsagt að byrja á ritgerðinni minni í environmental decision-making og hún fjallar um deliberative democracy og hvort að það sé fýsilegur kostur til þess að taka opinberar ákvarðanir..og þá sérstaklega ákvarðanir um umhverfið og náttúruna...þetta er semsagt hugmynd um að almenningur taki meiri þátt í að móta ákvarðanir, með því að hittast og ræða málin og soleis..segi ykkur meira frá því seinna..mjög spennandi efni...þegar ég kem heim ætla ég að breyta stjórnkerfi íslands þannig að við fáum öll að taka ákvarðanir...ekki bara kúkalabbar eins og dabbi og dóri....ég var að horfa á þátt í sjónvarpinu í gær sem heitir making slough happy...slough er semsagt bær rétt hjá london...bær sem er frægur fyrir að vera óhamingjusamur...þættirnir office gerast nebblega þar og fjalla um hvað allt er leiðinlegt í slough....en þangað fór lið af sérfræðingum til þess að gera bæinn hamingjusamann....sálfræðingar og hagfræðingar og allskonar lið sem er búið að kanna vísindalega hvað þarf til að gera fólk hamingjusamt....það þarf semsagt bara að fylgja nokkrum grundvallarreglum...þær eru þessar:
1. Get physical. Exercise for half an hour three times a week.
2. Count your blessings. At the end of each day, reflect on at least five things you're grateful for.
3. Talk time. Have an hour-long uninterrupted conversation with your partner or closest friend each week.
4. Plant something. Even if it's a window-box or pot plant. Keep it alive!
5. Cut your TV viewing by half
6. Smile at and/or say hello to a stranger. At least once a day.
7. Phone a friend. Make contact with at least one friend or relation you've not been in contact with for a while and arrange to meet up.
8. Have a good laugh at least once a day
9. Every day make sure you give yourself a treat. And take time to really enjoy it!
10. Daily kindness. Do an extra good turn for someone each day.
11. Náttúran. Vertu útí í náttúrunni í frið og ró.
Jemmerí...þetta er vísindalega sannað! eftir að hafa fylgt þessum reglum í nokkrar vikur voru tilraunadýrin í Slough orðin 20% hamingjusamari en áður! svo að ef ykkur vantar meiri hamingju, geriði þá tilraun og sjáið hvað gerist! jæja ég verð víst að fara að skrifa meiri ritgerð...er aðeins farið að hlýna núna....sjáumst eftir 4 vikur! sampai nanta...

sunnudagur, nóvember 20, 2005

hvít jörð....
jamms, nú er jörðin alltaf hvít á morgnana hér í bretalandi...nætur/morgun/hádegisfrost komið til landsins....nú er sko gott að eiga íslenskar ullargammósíur....ég var að koma heim af fyrsta fundi sjálfráða háskólans...Autonomous University of Lancaster er núna formlega orðinn til...söguleg stund...herra Richard Twine er ungur maður frá Aberdeen, þeirri ágætu borg, og hann var fyrstur til að veita okkur innblástur...hann gerði Phd fyrir nokkrum árum um Ecofeminism og vinnur núna í hákólanum....hann talaði við okkur um ecofeminisma og um hugtak sem heitir gender saavy....að vera gender saavy er semsagt að vera meðvitaður um kynhlutverk og önnur hlutverk sem eru búin til af samfélaginu en eru kannski ekki nauðsynleg og óumflýjanleg.... við gátum talað endalaust um þetta en samt er engin niðurstaða í hausnum á mér núna....þetta er náttlega svo óendanlega flókið og skrýtið mál....svo roooosalega djúpar ræturnar í okkur sem valda því að við sjáum fólkið í kringum okkur sem einhverjar ákveðnar steríótýpur....hann er með heimasíðu um þetta sem ég man ekki nafnið á en ég segi ykkur það porrþét þegar ég kemst að því, þetta er nebblega held ég mjög hollt og gott fyrir mann að pæla svolítið í....ég er búin að búa til svakalega fallegan flyer til að hengja upp í skólanum á morgun....Cheap room for rent!!!! ég er mjög bjartsýn núna á að það muni einhver hringja á næstunni og vilja fá þetta yndislega herbergi....ég er allavega mjög bjartsýn á að ég muni flytja héðan vegna þess einfaldlega að ég er búin að ákveða að flytja héðan! ef engin vill leigja herbergið fyrir janúar þá ætla ég bara að borga frú Caroline fyrir næstu önn og þá getur hún ekki annað en sleppt mér...hefur þá alla önnina til að finna annan í staðinn og tapar engum peningum....mér finnst það alveg þess virði að borga fyrir að fá að flytja á góðan stað....ég var að tala við helen og auroru í gær og þær eru báðar í flutningahugleiðingum svo við ákváðum að finna okkur eitthvað saman...það verður alveg súper frábært...þær eru einmitt hinir tveir heimspekingarnir, svo okkur kemur mjööög vel saman...jæja nú er notting hill að byrja í sjónvarpinu og ég á snakk og kók og súkkulaði....það er nú ekki oft sem það er eitthvað skemmtilegt í sjónvarpinu hérna svo það er hátíð í bæ! hahaha....hafið það gott kæra fólk og hugsið um hlutverkin ykkar....sampai nanta....

fimmtudagur, nóvember 17, 2005

Lexía nr.37
Lífið er alltaf að kenna manni lexíur og ef maður er heppinn eins og ég þá ber maður kennsl á þær og lærir af þeim....lexían sem ég er að læra núna (hefði alveg getað borið kennsl á hana fyrr en hei, allt er eins og það á að vera..) er þessi: Ekki halda að allir hugsi eins og þú, það er að segja, ekki halda að allir séu alltaf að hugsa um aðra og setja sig í annarra spor í stað þess að hugsa bara um sjálfan sig....hin sorglega staðreynd er nefnilega sú að fullt fullt af fólki hugsar um sjálft sig nr. 1, 2 og 37! það er erfitt fyrir ofurjákvæða manneskju eins og mig að sætta sig við svona staðreyndir...ég vill alltaf trúa því besta um allt og alla....Það er eitthvað búið að vera að bögga hjartað mitt undanfarna daga og ég var ekki alveg viss um hvað þetta væri...það þarf stundum litla einfalda hluti til að maður sjái ljósið og í morgun kom þessi litli einfaldi hlutur til mín: ég fór með þvottinn minn á háskólasvæðið til þess að setja hann í þurrkara í einu af þvottahúsunum þar....þegar ég kom til að ná í þvottinn minn var einhver sjálfselskur hálfviti með enga samvisku búin að stela handklæðinu mínu....hver gerir svona? hver er svona ógeðslega vondur? þetta var eina handklæðið mitt! ég kom af fjöllum og var bara alveg ofur flabbergasted yfir því að nokkur manneskja gæti verið svona samviskulaus og grimm....en þetta er gallinn minn.....ég trúi því aldrei að fólk geti viljandi verið að ljúga að mér, stela af mér, nota mig á einhvern hátt af sjálfselskum ástæðum og þessi galli veldur því að ég enda á því að verða særð....þegar þessi litli handklæðisatburður gerðist fattaði ég hvað var búið að vera að bögga mig...næsta önn er að nálgast og þessvegna er ég farinn að hugsa aftur um hvað mig langar að flytja héðan í janúar....mig langar að búa með auroru í lancaster og vera í hamingjusömu húsi á hamingjusömum stað með hamingjusömu fólki..ekki í skítaþorpi með leiðindafólki og ógeðisketti sem drepur fugla og kemur með þá inn....ég áttaði mig semsagt á því að ég er mjög sár útí frú Caroline Day, leigusalann minn fyrir að hafa platað mig til að skrifa undir samning... laug að mér að Galgate væri sveitasæla, að það væri 5 mín labb í skólann, að kötturinn héldi sig í herbergi Chris, að herbergið væri rooosalega kósý og síðast en ekki síst að ég yrði að skrifa undir samninginn strax og ég kom....ég ætla mér að redda þessu máli og þessvegna fór í til stúdentaráðsins í dag til að fá hjálp...fer þangað aftur á morgun með leigusamninginn og tala við konu sem veit allt um svona mál....en eins og gúrúið sagði: allt er eins og það á að vera! og þess vegna get ég alltaf haldið áfram að vera jákvæð....og þakklát fyrir að fá að læra allar þessar lexíur...núna veit ég að ég þarf að passa mig á öllu þessu sjálfselska og samviskulausa fólki sem er til....næst þegar ég fer í þvottahúsið sit ég og les bókina mína þar á meðan ég bíð eftir þvottinum....sampai nanta og góða nótt kæru vinir...hafið augun opin fyrir lexíum er lexían sem ég ætla að miðla til ykkar í dag....

miðvikudagur, nóvember 16, 2005

ýmist of eða van...
meira of samt...það er svo margt sem ég þarf að gera að ég er alveg orðin ringluð....það er ofurstutt þangað til ég kem heim og alltof margt sem ég þarf að gera þangað til....ég þarf að skrifa tvær ritgerðir, fara útúr bænum næstu þrjár helgar, lesa fyrir tímana mína, og svo allt hitt sem eðlileg manneskja gerir, borða, sofa og eiga í samskiptum við fólk.....en ég áttaði mig á því í dag, eða er að átta mig á því núna eftir að hafa verið að ringlast meira og meira í allan dag, að ég þarf að breyta planinu mínu til þess að þetta gangi allt saman upp. fyrsta skrefið er að endurskoða þessar helgarferðir. planið var að fara í göngu við hadrian's wall um helgina, fara í heimsókn til brynhildar til leeds helgina þar á eftir og skunda svo á atp-festival með góðu íslensku fólki fyrstu helgina í desember. auðvitað fer ég á atp-festivalið, auðvitað fer ég að tjilla með brynhildi, þannig að ég er að ákveða núna að sleppa göngunni næstu helgi...það verður hvortsemer örugglega grenjandi rigning og skítakuldi og ég sem er búin að vera að þamba sólhatt alla vikuna vegna hálsskíts verð bara fárveik af þessu brölti....mjög góð réttlæting ekki satt? þá get ég notað helgina í að vera ofurdugleg og byrja að skrifa fyrstu ritgerðina sem ég er búin að vera að lesa fyrir undanfarið. skref númer tvö er að fara á fætur ofursnemma það sem eftir er af önninni, þá er ég að tala um 6 leytið...og fara þá bara fyrr að sofa...jógakonan mín sagði nebblega að maður ætti að fylgja náttúrunni eins og maður getur, fara að sofa þegar sólin sest og vakna þegar sólin kemur upp...eitt merkilegt sem hún sagði mar.....þegar maður vaknar á morgnana og verður barasta að hlaupa beint á klósettið er það vegna tenglsa manns við náttúruna, þ.e. sólina...þegar sólin kemur upp fer þvagblaðran í gang! haha....ég vakna einmitt yfirleitt í kringum 6 til þess að fara á klósettið og sofna svo aftur...en á morgun og alla hina dagana ætla ég bara að fara á fætur með sólinni..þá þarf maður ekki einu sinni vekjaraklukku..haha! síðasta skrefið er svo að sætta mig við að ég get mjög líklega ekki klárað báðar ritgerðirnar á þessum stutta tíma sem er eftir...þá er nýja planið að leggja áherslu á ritgerðina sem ég er byrjuð að vinna í og reikna svo með tíma í janúar heima til þess að klára seinni ritgerðina...biðja jafnvel um vikufrest og skila þegar ég kem aftur hingað 16. jan í staðinn fyrir 10.jan...jafnvel biðja bara um ennþá lengri frest...þeir sögðu kennararnir að það væri í lagi að fresta ritgerðum þar til á næstu önn...og næstu önn er ég bara í einum kúrs þannig að ég hef góðan tíma....hmmm....jebberíjamm þá er ég komin með plan og búin að drepa ykkur úr leiðindum...haha.... ég þurfti bara að koma þessu út úr kerfinu svo ég hætti að snúast í hringi...og þar sem ég á enga bestu vini eða foreldra til að tala við í beinni útsendingu hér og nú þá verð ég bara að tala við netið....ó hvað ég hlakka fáránlega mikið til að sjá öll andlitin og heyra allar raddirnar aftur....maður fær svona óraunveruleika tilfinningu þegar maður er lengi í burtu..finnst eins og fólkið heima sé óraunverulegt af því að það er í öðrum raunveruleika....bráðum kem ég yfir í ykkar veruleika og það verður súperyndislegt....sjáumst! eða sampai nanta! á malasísku....

þriðjudagur, nóvember 15, 2005

blúbbedí hei hei skúmmedískamm...
Ég biðst innilega afsökunar á bloggleti minni undanfarið...málið er bara að ég er svo svakalegur námsmaður þessa dagana að þegar ég er búin að vera á bókasafninu allan daginn er ég bara líkami með engan heila á kvöldin....ég kem heim og líkaminn vill bara éta fullt af nammi og glápa á sjónvarpið... haha það var ógó fyndið að á meðan netið okkar lá niðri var breska sjónvarpið það eina sem var í boði og það er svo fúlt og illa lyktandi að ég var orðin hooked á heimildarþáttum....það var það mest spennandi sem var í boði...horfði á fullt af þáttum um Sesar og gamla kónga í bretalandi....en það var einn þáttur sem stóð soldið uppúr...sko hmmm...hvar á ég að byrja....í environmental decision-making kúrsinum sem ég er í vorum við búin að vera að tala um skyldur okkar við komandi kynslóðir....svo kem ég heim eitt kvöldið, einmitt eftir tíma þar sem þetta var umræðuefnið, kveiki á sjónvarpinu og þá er heimildaþáttur um genavísindi í gangi...ég fer að glápa og vá hvað ég var spennt! haha...nýjustu uppgötvanir í genavísindum eru semsagt þær að erfðir mótist af umhverfinu okkar....ekki bara af því sem gengur á inní frumum og genum heldur líka því sem gengur á utan líkamans...semsagt...það sem amma mín t.d borðaði og gerði, aðstæður sem hún lenti í og soleis á meðna hún var ólétt af mömmu, hefur áhrif á hvernig ég er.... og það sem pabbi gerði þegar hann var að verða kynþroska hefur líka áhrif...semsagt það sem gekk á á meðan kynfrumurnar sem mynduðu mig urðu til.....vó þetta er alltof flókið mar....þetta gaf mér allavega algjörlega nýtt sjónarhorn á skyldur okkar við komandi kynslóðir.....þetta þýðir að allt sem ég geri gæti haft áhrif á börnin mín og barnabörnin og barnabarnabörnin og.....eeeeníveis....hvað var ég eiginlega að segja?...já....ég hef semsagt verið að horfa á sjónvarpið þegar ég kem heim á kvöldin...ef ég er ekki í tíma eða á fundi....það er svo mikið að gerast í kringum mig....við vorum t.d á sunnudaginn að stofna Autonomous University of Lancaster....ég og fólk úr deildinni, nýnemar og Phd nemar og fleiri fengum þessa hugmynd útfrá öllu ruglinu sem var í gangi varðandi deildina og stöðu háskóla almennt....við ákváðum semsagt að stofna "háskóla" sem væri fyrir alla og um allt....þyrfti semsagt ekki að fylgja því í hvað yfirvöld vilja setja peninga í að stúdera, heldur bara það sem fólk hefur áhuga á að stúdera...við byrjum bara hægt, erum búin að skipuleggja fyrirlestra/umræður næstu 4 sunnudaga fram að jólum semsagt og höldum svo bara áfram að spinna hugmyndir um hvað við gerum..okkur langar að reyna að fá fólk sem er ekki í háskólanum, auglýsa þetta í Lancaster og soleis...semsagt bjóða öllum uppá tækifæri til að læra eitthvað skemmtilegt....ég hef samt alltaf tíma til að slappa af í jóga og hugleiðslu og það gerir held ég allt miklu auðveldara....geri jóga á morgnana og reyni að hugleiða seinnipartinn....svo er ég líklega komin á æðislegt jóganámskeið...það er semsagt indversk kona sem er nýkomin hingað í doktorsnám og hún ákvað að bjóða fólki í jóga....ég og uli hin þýska, sem deilir með mér áhuganum á andlegum málefnum, fórum og hittum hana í gær og stefnan er að hittast þrisvar í viku þó svo að ég og uli séum einu nemendurnir sem mættu í fyrsta tímann...það verður fyndið ef það verður svoleiðis...bara eins og við tvær séum með einkakennara...frábært! og ódýrt....bara 2 pund tíminn....hér í galgate og í lancaster kostar tíminn 4 og 6 pund! og líka yndisleg kona...og þannig eiga jógakennarar að vera....jæja nú er ég búin að munnræpa nóg og heilinn orðinn tómur....líkaminn vill farað borða haagendaz ís og glápa á heimildarþátt....þið megið alveg búast við nýju looki þegar ég kem heim....haha baba bumba....ég á það skilið að fá mér aukakíló...hef ekki verið nógu dugleg við það í fortíðinni....wellio....sampai nanta over&out....

miðvikudagur, nóvember 09, 2005

haust, vetur, jól...
ég held barasta að veturinn sé loksins kominn til bretalands....hann læddist hingað um helgina...kom fljúgandi með svakalegri vindkviðu beint að norðan...rigndi og rokaðist í tvo daga og ákvað svo að setjast að með kööööldu lofti...það gerðist í gær...alltí einu var bara orðið ofurkalt þó að rokið og rigningin væru farin...og í dag kom staðfestingin....í morgun þegar ég steig út um dyrnar byrjaði 5 mínútna langt haglél og þar á eftir rigningarskúr..ákkúrat þegar ég fór út til að hjóla í skólann...bara til að bleyta mig vel...eins og norðankuldinn hafi vitað að það væri ég, íslendingurinn, sem væri á leiðinni út og ákveðið að gefa mér smá heimafíling...svo skein sólin restina af deginum....en kuldinn er hér ennþá....skrýtið hvað kuldinn hér er öðruvísi en heima...hann er rakur og smýgur einhvernveginn inn að beini... ég hlakka til að fá að sjá alvöru snjó og finna íslenska þurrkuldann...já það er barasta alveg að koma að þessu...og þessvegna ætla ég að reyna að byrja á ritgerðunum mínum um helgina...þarf bara fyrst að ákveða hvað ég ætla að skrifa um....jebberíhú....ein spurning til atp-fólks...hvenær komið þið til englalands? er að spá í að bóka mér lestarmiða hið fyrsta....fer að koma að þessu....jibberíjei! jæja ætla að halda áfram að bora í nefið...hvar er allt msn fólkið þegar ég er loksins komin með netið aftur....langar í spjall...sampai nanta over&out...

mánudagur, nóvember 07, 2005

jibbíjei!!!!!
húrra!!! netið okkar virkar aftur!!!!!!!! ótrúlegt hvað maður saknar þess þegar maður er orðinn vanur að hafa það þráðlaust....og annað húrra!!!!!! í janúar munu belle & sebastian halda fullt af tónleikum hér í bretalandi....ég þarf bara að velja hvar ég vill sjá þau! manchester, liverpool, glasgow eða aberdeen.....yndislegt!!!!!!!!!! helgin mín var mjöööög busy og góð..ráðstefnan var mjög fín og svo voru tónleikar og partí á kvöldin....á sunnudaginn héldum við fund um framtíð MAVE og hvað við ættum að gera og það var mikill léttir....síðasta vika var óþægileg útaf allri þessari neikvæðu og sorgmæddu umræðu um deildina en nú er það allt komið út og við getum hætt að röfla...sem er frábært ég var orðin hundleið á að röfla...við ákváðum að það eina sem við gætum gert til að bæta stöðuna er að halda öllu mjöööög lifandi í vetur....og það þýðir að við nemendurnir ætlum að vera ógó dugleg að halda uppi lifandi umræðum okkar á milli, hafa leshópa þar sem við lesum eitthvað sem okkur langar að stúdera og hittumst svo í umræður...svo eru nokkrir doktorsnemar í deildinni sem eru tilbúnir að taka okkur í óformleg námskeið um það sem þau hafa lært...og svo ætlum við að skipuleggja fyrirlestraröð þar sem við fáum allskonar fólk til að koma og kenna okkur um allskonar dót...John O´Neill kennarinn okkar þekkir náttúrulega fullt af environmental heimspekingum og hann ætlar að hjálpa okkur að fá soleis fólk til að koma og halda fyrirlestra...þannig að þetta verður súper aktívur og spennandi vetur sem er frábært fyrir okkur nemendurna og sýnir líka yfirvöldum deildarinnar að umhverfisheimspekin er mjööög lifandi í deildinni og þarf að vera það áfram því það er það sem nemendurnir vilja...frábært plan og allt orðið ofur jákvætt aftur!!!!! jei!!!!!!! búbbedíhú nú ætla ég að glápa á skjá einn fyrir svefninn...góða nótt kæra fólk....

miðvikudagur, nóvember 02, 2005

halloio....
eg var ad koma fra leeds i dag eftir solarhringsdvol thar med fru brynhildi og herra runari...vid forum a mega-geggjada tonleika med sjalfum SKATALITES!!!!!! i gaerkvoldi og thad var eitt af minum bestu tonleikaupplifelsum skal eg ykkur segja...toku alla gomlu skatalites-slagarana og voru ekkert ad slaka a thott ad trommarinn og fleiri medlimir vaeru komnir vel yfir sextugt....thegar eg kom heim kl. 3 i dag for eg beint a fund med hinum MAVE nemendunum og herra John O'Neill sem er adal MAVE kennarinn okkar....vid vorum ad funda um hina skrytnu stodu sem deildin okkar er i....eg er ekkert buin ad minnast a thetta vid ykkur en svona er stadan: bradum mun deildin min ekki heita institute for ENVIRONMENT, philosophy and public policy heldur bara institute for philosophy and public policy....vid nemendurnir vorum buin ad vera ad heyra sogur af thessu en vissum i raun ekkert hvad er i gangi...svo vid heldum fund og fengum ad vita ad thetta er liklega ad fara ad gerast...eda i raun veit enginn almennilega hvad er ad fara ad gerast en thad eru breytingar i gangi....vid erum nattlega ekki alveg satt vid thad ad thad se kannski verid ad taka ut astaeduna fyrir thvi ad vid komum hingad....environment...eg var soldid reid i dag...fannst eins og thad vaeri buid ad selja mer gallada voru....en eg veit eftir thennan fund og lika af thvi hvad eg er buin ad laera hingad til og se fram a ad laera, ad eg er alveg ad fa mjog gott nam herna og se alls ekkert eftir thvi...malid er bara ad ef eg hefdi komid fyrir tveimur arum hefdu verid fleiri kennarar her sem eru serhaefdir og hafa umhverfismal sem sitt adalfokus efni..en nu eru sumir theirra farnir og engir adrir verid radnir i stadinn...thetta er astaedan fyrir thvi ad okkur fannst a okkur brotid og hofum ahuggjur af nemendunum sem koma naesta ar...vid vorum ekkert latin vita ad thad vaeru breytingar i gangi... og ef thetta er ad fara ad breytast meira finnst okkur ad nemendur naesta ars hafi rett ad thvi ad vita hvad er a seydi....allavegana....thetta er allt saman skrytid en samt ekkert slaemt thannig sed fyrir mig...eg veit ad eg fae gott nam herna enntha og er bara heppin ad hafa komid nuna en ekki naesta ar thvi nuna er allt ovist hvad gerist med naesta ar....thegar ollu er a botninn hvolft er thetta bara partur af efnishyggjunni sem er ad trollrida ollum heiminum...haskolar vilja bara gefa peninga i thad sem er hagkvaemt.....en i adra salma....naesta helgi verdur ofur spennandi thvi ad tha verdur radstefna her i skolanum sem nokkrir doktorsnemar ur deildinni eru ad skipuleggja og eg og hinir nynemarnir erum ad hjalpa til med...thetta verdur radstefna thar sem koma saman um 80 manns allir tengdir umhverfismalunum, annad hvort sem akademiskt folk eda sem folk sem hefur verid ad berjast med umhverfisverndarsamtokum og soleis...efni radstefnunnar er akademic in activism and activists in academia....thetta verdur aedi paedi spennandi.....jaeja verd ad farad na i straeto...sakna ykkar allra og hlakka til jolanna sem eru eftir svoooo stuttan tima....sampai nanta..

This page is powered by Blogger. Isn't yours?