miðvikudagur, desember 14, 2005
verð að farað pakka niður núna...
og klukkan er orðin ellefu... hvað var ég að segja í gær? tíminn skríður? well hann hætti og fór að fljúga aftur eins og ég mun gera frá glasgow eftir einn og hálfan sólarhring....dagurinn er búinn að fljúga frá mér einhvernveginn...vaknaði tiltölulega snemma..þvoði þvott...elti uppi heimildir fyrir ritgerðina...fórí bæinn...jólagjafaðist..gerði samning um herbergisleigu húrra....fór svo í mat til söru í caravaninum ásamt helen, matt, noel og fleirum...er að gera mér grein fyrir því núna hvað ég er gjörsamlega búin á því...líkami og sál orðin ofurþreytt og vantar að komast í orkulindina...ég held í alvöru að ég sé á allan hátt háð íslandi..líkamlega og andlega...ég er meiraðsegja farin að tala verri ensku síðustu daga...heilinn orðinn þreyttur á að hugsa á því tungumáli...það verður brjál dagur á morgun hjá mér...verð að klára að pakka eldsnemma, mæta í tíma frá tíu til tólf, koma hingað með matt og helen eftir tíma, sækja dótið mitt og flytja það heim til hennar og segja bless við þennan vafasama stað....kötturinn gaf mér illt auga áðan og ég finn fyrir neikvæðninni hérna inni einhvernveginn....fannst áðan að kannski væri ég dónaleg að vera ekki að banka á hurðina hjá öllum og kveðja en mér fyndist það bara weird...ég er ekki búin að eiga í neinum eðlilegum samskiptum við þetta fólk....þau buðu mig aldrei velkomna...af hverju ætti ég að kveðja?...anyway...bad wibes in da house og ég get ekki beðið með að flytja héðan út á morgun....svo verð ég að fara með allt ferða dótið mitt heim til auroru, fara í tíma frá 7 til hálf tíu, fara síðan út með krökkunum og gista í lancaster hjá auroru...sparar mér 15 punda leigubíl héðan elsnemma á föstudaginn...jeiiii!!! á morgun hefst semsagt ferðalagið...en núna gott fólk verð ég að pakka fullt fullt af bókum og fötum í eina tösku!...það var allavega pælingin....sampai nanta over&out..

þriðjudagur, desember 13, 2005
sloooow motion....
vá hvað tíminn líður hægt núna...búin að fljúga í burtu frá mér síðustu mánuði en svo þegar ég vill að hann fljúgi byrjar hann að skríða...finnst eins og dagurinn í dag og í gær hafi verið heil vika... get ekki beðið eftir að byrja að pakka niður dótinu mínu og koma mér héðan...ég var að tala við hann Ian rétt í þessu og við gerðum samning um að á morgun kæmi ég til hans með 100 pund og þá mun bíða mín æðislegt herbergi á frábærum stað í lancaster þegar ég kem aftur hingað í janúar....jibbííií!!!! þvílíkur munur sem það verður að búa með góðu fólki á góðum kattarlausum stað....ég veit annars ekkert hvað ég á af mér að gera þessa stundina...finnst eins og ég hafi helling að gera en samt ekki...get eiginlega ekki byrjað að pakka strax því að ég þarf að nota draslið mitt næstu daga...ekkert í sjónvarpinu....allir svo uppteknir við ritgerðaskrif nema ég...ég ætti kannski bara að skella mér í bíó....hef ekki farið ein í bíó síðan í október og ég elska að fara ein í bíó... ég gæti svosem byrjað að fínpússa ritgerðina mína en ég hef held ég ekki eirð í mér fyrir það....já ætli ég sé ekki bara að springa úr eirðarleysi...langar að hoppa og æpa og hlaupa upp í næstu flugvél en....ég verð víst að bíða... í 2 og hálfan sólarhring....shit finnst það eins og tvær vikur núna...haha....sé ykkur á föstudaginn...sampai nanta over&out..

mánudagur, desember 12, 2005
sveitahippi eða borgarbarn?
ég er í pínu krísu...ég er semsagt að leita mér að nýju húsnæði....ég er búin að finna mjög fínt hús í borginni en svo vara verið að segja mér frá því að það er einn caravan laus á bóndabælinu hérna rétt hjá Galgate....það er semsagt bóndabær með kindum og hestum og beljum og öllu og þar eru eitthvað um 19 caravanar...eða hjólhýsi....ég hef komið inn í tvo svoleiðis sem Noel og Sara búa í og þeir eru bara mjög kósý...eins og litlar íbúðir hannaðar í sixties stíl....ef ég byggi þar tæki það mig 40 mínútur að labba í skólann og bæinn en á móti kæmi að ég hefði yndislegu sveitina allstaðar í kringum mig....ef ég bý í bænum get ég tekið strætó í sveitina til að fara í gönguferðir og soleis og ef ég bý í sveitinni get ég tekið strætó í bæinn......hvort er betra? ég vil skoðanakönnun gott fólk...segið mér nú hvort ég er: sveitahippi í hjólhýsi eða borgarbarn í alvöruhúsi...? sampai nanta over&out..

laugardagur, desember 10, 2005

skrýtinn draumur skrýtinn dagur...dreymdi svo mikið og skrýtið í nótt að ég slapp ekki úr draumaheiminum fyrr en um eitt leytið í dag...draumarnir voru fullir af skrýtnum tilfinningum og þegar maður vaknar eftir svoleiðis þá sitja tilfinningarnar eftir þó maður sé vaknaður í raunveruleikann...svo ég fór í gönguferð...gekk um akra og skóga hér í kring í tvo klukkutíma og söng fyrir trén og kindurnar...göngur og söngur hreinsa hugann...ró og friður, kyrrð og fegurð...góður undirbúningur fyrir jólapartíið sem ég er að gera mig klára fyrir...ef að það dreifir ekki huganum veit ég ekki hvað...er á leiðinni í mat til Uli fyrst og svo verður bara dansað og sungið fram á nótt...með öllu yndislega fólkinu...en næstu helgi ætla ég að dansa og syngja fram á nótt með ykkur kæra fólk...ennþá yndislegra fólkinu...jidúddamía hvað ég er heppin að þekkja svona mikið af góðu fólki...allir til? jei! sampai nanta over&out...
föstudagur, desember 09, 2005
Allt að gerast...ný hús...ný hljófæri...
Jammerí...ég skoðaði tvö hús í dag til að hugsanlega flytja í í janúar....ég og aurora skoðuðum eitt hús saman sem er bara lítið og sætt tveggja manna hús, annað herbergið var risastórt og hitt pínulítið en húsið alveg frábært...eini gallinn er að það er soldið útúr..tekur alveg korter að labba þaðan niðrí bæ...mér er svosem alveg sama um það þannig séð en aurora er búin að búa mjög nálægt miðbænum og finnst þetta aðeins of langt...við ætlum að hugsa málið....svo fór ég ein og skoðaði herbergi...æðislega kósý hús og herbergi, stór garður hinum megin við götuna og bara 5 mín niðrí bæ....og Ian sem sýndi mér húsið virtist vera mjög indæll og heilbrigður maður..annað en Chris kattareigandi sem er stórskrýtinn og leiðinlegur...oj! Ég hringdi í Caroline leigusalann minn í fyrradag og sagði henni að ég ætlaði að flytja út áður en ég færi heim og að ef enginn væri búinn að taka herbergið þegar ég kem aftur þá muni ég bara borga næstu önn fyrir að fá að sleppa héðan...hún samþykkti það...jei! en svo í morgun var sophie hans chris að tala við hana í símann og svo vildi hún fá að tala við mig....vildi bara vera viss um að ég mundi nú borga alla rafmagnsog hitareikninga áður en ég færi....auðvitað! þá voru "the other students" concerned about it....þau eru svo ömurleg þetta pakk...þurfa að vera að væla eitthvað í henni í staðinn fyrir að nefna þetta bara við mig! svo sagði hún mér að þau vildu sko ekki vera að sýna fólki herbergið fyrir mig á meðan ég er í burtu....eins og þau mundi muna eitthvað um það....mér finnst glatað að kynnast svona lágkúrulegu leiðindafólki....ég sem hélt að flest fólk væri gott fólk....ég finn bara fyrir vondu straumunum sem koma frá þeim....en ég fann fyrir góðum straumum frá Ian og Rosie sem býr þar líka þannig að ég er mikið að spá í að grípa gæsina....hugsa málið yfir helgina.....annars er ég búin að vera súper glöð í dag....af tveimur ástæðum: ég ákvað í gærkvöldi að ég ætla ekki að skrifa ritgerð númer tvö í social theory...málið er að social theory kúrsinn er í raun ekki í mínu mastersprógrammi heldur í hinum environment masternum sem er meira félagsfræðilegur og ég er ekkert alltof spennt að skrifa félagsfræði...ég hélt að það væri bara einn kúrs á næstu önn sem mig langar að taka og ég þyrfti þessvegna að taka tvo núna, en svo fattaði ég í gær að einn kúrsinn sem ég var búin að útiloka af því að hann er bara kenndur á netinu er mjööög spennandi heimspekilegur kúrs....þannig að ég ætla að taka hann í staðinn....sem þýðir að ég er eiginlega bara komin í frí núna! er nebblega búin með hina ritgerðina, á bara eftir að fínpússa hana....svo ég var bara að rölta um í dag og versla jólagjafir...dædidææ...og hvað haldiði að ég hafi rekist á? glænýja og fallega melodiku!!!! málið er að ég fór í þessa hljóðfærabúð þegar ég kom hingað fyrst og spurði gamla eigandann um melodikur en hann átti engar....svo var ég að labba framhjá í dag og sá þá þessa líka fallegu melódiku í glugganum! hann hefur bara pantað þetta handa mér kallinn...svo ég fjárfesti í einu stykki melodiku á aðeins 29 pund! jibbíííí....nú verður hlynur stoltur af mér...og ég og herra hallvarður getum skapað nýja tónlist með öllum nýju hljóðfærunum....giggjað....jæja ætlað tjilla undir sæng í ískalda herberginu mínu...því ég þarf ekki að læra...jeiiiii!!!! sampai nanta gott fólk...

þriðjudagur, desember 06, 2005

Mig langar að koma til ísalands og búa til snjóholur með einari huga! er eitthvað búið að snjóa heima? þetta er allt að gerast núna...atp-festivalið var frábært og það að hitta íslendingana mína lét mig bara hlakka meira til að hitta alla hina líka...jibbíjei eftir aðeins 9 daga! ég er komin aftur í ritgerðarskrifin á fullu...tók samt smá tíma að komast í gírinn...þurfti að sofa soldið lengi í morgun...en ég er samt búin með nokkrar blaðsíður í viðbót. síðasta helgin hérna í lancaster verður mjög busy....á föstudagskvöldið ætlum við öll að fara á green fest á the gregson...gregson er svona communitycenter/bar/veitingastaður/tónleika og ballstaður....alveg hreint yndislegur staður þar sem allt góða og skemmtilega græna fólkið hengur...green fest er semsagt árlegur viðburður þar sem allt þetta góða fólk kemur saman og borðar risastórt hlaðborð af grænum mat...þá er ég að meina vegan og vegetarian...ekki grænan á litinn..haha....svo eru líka jólatónleikar feedback fólksins á föstudaginn...fullt af mjög áhugaverðum hljómsveitum....á laugardaginn er svo planið að versla allar jólagjafir á einu bretti....mjög fyndið...í fyrsta skipti í mörg ár hlakkar mig í raun og veru til að fara niðrí bæ í verslunarbrjálæðið....kannski er það vegna þess að ég veit að ég get keypt góðar gjafir fyrir miklu minni pening en heima...kannski er það vegna þess að þegar maður er í burtu frá fjölskyldu og vinum finnst manni gaman að fara í búðir og hugsa til þeirra og reyna að finna eitthvað sem þau verða ánægð með....jei! ég hlakka svo til að fara heim! ég hugsa þessa hugsun svona sirka fimm sinnum á dag...að minnsta kosti! á laugardagskvöldið er svo jólapartí deildarinnar minnar...það verður haldið í the bungalow sem er hús hér í Galgate sem nokkrir fyrrverandi og núverandi nemendur búa í....mjög vinalegt og skemmtilegt hús....og mikið er ég glöð að fá loksins að fara í partí í Galgate...enginn leigubílakostnaður! jebberí þetta verða mjög busy 9 dagar...sem þýðir að þeir fljúga framhjá mér...sem þýðir að ég þarf að halda áfram að skrifa ritgerð...sampai nanta over&out
fimmtudagur, desember 01, 2005
vúúúú...vúúúú....
þetta hljóð getur táknað marga hluti en í þetta skiptið táknar það þá tilfinningu að allt sé á fullum snúningi í kringum mig, það er aldrei pása, ég þarf aldrei að bíða eftir fiski, heldur hlaðast hann jafn óðum upp og það er kominn föstudagur...held það verði vinna á morgun...æ, ég fæ þá allavega pizzu í hádeginu á laugardaginn....já svona tengjast allir hlutar lífsins míns og allra hinna líka. Michelmas önnin á bara 2 vikur og 2 daga eftir...sem er alveg eins og föstudagur í fiskinum....búið að vera frekar rólegt alla vikuna og sérstaklega á mánudaginn, þegar við biðum í 2 tíma eftir fiski, en svo kemur föstudagur og 10 kör....vinna á morgun....held ég komist ekki hjá því að skrifa nokkar setningar í jólafríinu....nota bara tímann þegar allir hinir eru hvort sem er að vinna....ég byrjaði að Skrifa decision making ritgerðina mína í dag eftir tæplega 2gja vikna heimildaleit/lesningu og glósuskrif. náði að ljúka rúmlega 1/3 af blaðsíðufjöldanum en það er bara byrjun, ég á eftir að bæta við og endurskrifa þúsund sinnum en það er samt gott að vera komin með svona margar setningar á blað og eiga svona margt spennandi eftir. ég ætla að segja ykkur aðeins frá ritgerðarpælingunni minni ef ég get. Sko, spurningin er hvort að deliberative democracy sé góð leið til þess að taka umhverfis ákvarðanir..environmental decisions.. sú leið sem hefur verið farin hingað til, síðan að umhverfið fór að koma til tals sem eitthvað sem þarf að setja inn í pólitísku ákvarðana formúluna, er einhverskonar hagfræðilegur economic útreikningur sem nefnist cost-benefit analysis...semsagt greining á því hver ágóðinn og hver kostnaðurinn verður í peningum. Semsagt ef við þurfum að taka ákvörðun um hvort það megi höggva niður regnskóga eða sökkva hálendi eða drepa dýr, hvað er réttlæti í heiminum, hvernig dreifum við peningum og mat um heiminn, hvaða tækni er réttlætanleg og svo framvegis og framvegis, þá þurfum við bara að gera könnun. hringja í fullt af fólki og spurja það mjög svo einfaldrar spurningar: Kæri viðskiptavinur/lýðræðisþegn, Hvað mundir þú geta hugsað þér að borga mikið fyrir að fá að halda Gullfoss ósnortnum? og svo er hægt að umorða: Hvað mundir þú krefjast að fá mikið í bætur fyrir Gullfoss? Þetta er semsagt aðferðin!!! jei!! ég er búin að læra að taka ákvarðanir um umhverfið!! neeee.....þetta er víst ekki alveg svona einfalt...eða finnst ykkur það? Það eru svo endalaust mikilvægar og margar spurningar sem snerta umhverfismál í þessum heimi okkar sem er alltaf að breytast meira og meira og hraðar um leið. Ég yrði mjög hissa en ekki alveg fullkomlega flabbergasted ef að einhver Íslendingur myndi vilja eða geta svarað þessum spurningum um Gullfoss....ég vil skoðanakönnun..segið mér öll sem lesið þetta hvað er svarið ykkar við Hvað viltu mikið fyrir Gullfoss? spurningunni..Einar Ben ætlaði víst einhverntímann að selja Norðurljósin og sitthvað fleira í den....en ég hélt að það væri bara brandari! Vegna þess hvað lýðræðið er orðið eitthvað máttlaust þessa dagana ( fólk nennir varla að kjósa, kvartar yfir að allir flokkarnir séu eins, það skipti engu máli, og að yfirvöldin hugsi bara um rassgötin á sjálfum sér og öðrum ríkum mönnum, og virði skoðanir okkar hinna ekki viðlits), hafa verið að gerjast hugmyndir í nokkuð mörg ár um að endurlífga gamla gríska hugmynd sem er jafngömul lýðræðishugmyndinni. Þessi hugmynd er um deliberative democracy (hvað á það að heita á íslensku.. systir..?). Deliberative democracy er semsagt sú hugmynd að grundvöllur þess að lýðræðislegar ákvarðanir séu teknar í lýðræðisríki, þurfi að vera almenn umræða þar sem allir þegnar hefðu jafnt frelsi til að tjá sig um skoðanir sínar og hlusta á aðrar skoðanir og eiga í gagnrýnum umræðum um þær. Útfrá þessum umræðum væri svo leyfilegt að taka ákvarðanir sem byggðust á sameiginlegum niðurstöðum umræðunnar. Mikilvægustu skilyrðin sem þarf að uppfylla til þess að það sé hægt að tala um deliberative democracy eru inclusiveness og unconstrained dialogue. Inclusiveness þýðir bara að allir eigi að hafa rétt og möguleika á því að vera með í umræðunum og óheft umræða er umræða sem er ekki trufluð af völdum, klækjum og einka hagsmunum. Réttmæti ákvarðaninna myndi semsagt byggjast á því að allir þáttakendur mundu samþykkja aðstæðurnar og skilyrðin við umræðurnar. Endanlega ákvörðunin þyrfti ekki að vera fyllilega samþykkt af öllum þátttakendum, enda væri það aldrei hægt í þjóðfélagi þar sem fólk hefur mjög margar skoðanir og umhverfið okkar hefur svona mörg mismunandi gildi. Það eru nokkrar mismunandi leiðir sem hægt væri að komast að niðurstöðu án þess að hún væri einróma. Hún gæti verið einróma, komist að samkomulagi sem væri byggt á rökum og ástæðum frá báðum hliðum, komist að málamiðlun, eða einfaldlega að kjósa um niðurstöðu. Það sem skiptir mestu máli er hvað fer fram í umræðunum á undan ákvörðuninni. En allavegana...haldið þið að það væri betra að við tækjum ákvarðanir um landið okkar og þjóðfélagið og okkur með því að heyra sjónarmið sem flestra með opnum huga og opnum eyrum og velta okkar eigin skoðunum upp og hlusta á gagnrýni, eða bara gera Gallup könnun um hvort við eigum að selja Gullfoss fyrir eina milljón, 10, 100 eða skrilljón, fer eftir því hvað fólk er til í að borga og líka hvað það á mikinn pening....ég er viss um að Jóhannes í Bónus væri til í að borga miklu meira en ég því hann á miklu meiri pening...það er raunverulegt fyrir honum að borga fullt af milljónum en ekki fyrir manninn í næsta húsi sem hefur aldrei einu sinni átt milljón.....hmmm...hvort er betra? Í afar stuttu máli er niðurstaðan mín þessi: mér finnst deliberative democracy vera rosa góð hugmynd en hún getur aldrei aldrei virkað í alvörunni nema við byrjum strax að kenna börnunum, semsagt, lýðræðisþegnum framtíðarinnar, að eiga í svona umræðum...kennum þeim að hlusta, að tjá sig, að virða aðra og sýna þeim virðingu, að setja sig í spor annarra og jafnvel að setja sig í spor þeirra sem verða hérna eftir þúsund ár, og í spor dýranna og náttúrunnar....ég þekki allavega þrjár ef ekki fjórar eða fimm eða jafnvel 17 kennara sem kunna að kenna þetta....eigum við ekki að setja það á námsskránna?...ef allir þegnar í lýðræðisríki kunna þessa grundvallar samskiptaeiginleika og tillitsemi þá held ég að deliberative democracy myndi hafa möguleika á að koma með snilldarhugmyndir og bjarga heiminum!....allt í lagi að vera bjartsýn....nauðsynlegt....semsagt seinni helmingurinn af ritgerðinni verður vonandi um menntun....ég ætlaði að segja ykkur aðra sögu um gönguferð um sveitina hér í kringum Galgate...en ritgerðarflæðið mitt tók völdin..sorry....fattaði bara allt í einu hvað það er þúsundfalt auðveldara að tjá sig vel á íslensku.....allur dagurinn fór í að reyna að orða allt þetta og svoldið meira á ensku....tók bara örlitla stund á íslensku...á ég ekki bara að ráða mér þýðanda...haha....eftir sólarhring verð ég næstum því á leiðinni suður til CamberSands að hitta yndislegt fólk og hlustsa á góða tónlist...og lesa soldið í lestinni...er komin með hugmynd fyrir næstu ritgerð.....munið kæra fólk: við eru öll snillingar! annars væri enginn tilgangur með að vera að þessu....sjáumst...