þriðjudagur, janúar 31, 2006
Manchester England Englaland...
Í gær fór ég aftur til Manchester eftir langa fjarveru...men ó men hvað það var skrýtið eitthvað...ég rölti um afflecks palace sem er yndislegur margrahæða markaður sem maður getur rölt um og skoðað án þess að kaupa tímunum saman....uppáhaldsbásinn minn hafði lítið breyst, ennþá með sömu uppáklæddu gömlukonugínurnar sem maður gat sest hjá og tjillað...í fyrsta skipti sem ég rölti um þennan markað og settist hjá gömlukonu gínunni söng mick jagger fyrir mig you can't always get what you want og ég sagði ó já...í þetta skiptið setti plötuspilarinn undurfagra neil young tóna á fóninn um leið og ég gekk inn í básinn...gerði það að verkum að ég skoðaði hverja einustu flík og bók svo ég gæti lengur notið neils...og ég sagði takk...svo fór ég að hitta sophie og hún stakk upp á að hittast á night and day café...eitthvað kannaðist ég við staðinn..og jú ég hafði víst setið í nákvæmlega sama sæti forðum daga í dramatíkinni...en stóð svo upp og dansaði úr mér líftóruna í brjáluðu sólskini...svo þið sjáið að auðvitað fær maður flashback og nostalgíu og undarlegheit yfir sig hahah..bara fyndið...við sophie fórum svo á cornerhouse og fengum okkur dýrindis kvöldmat...gaman að hitta hana aftur og spjalla um heima og geima...og þá var komið að því...jeeeiiiiiii!!!!!!!!!! ég fékk að fara á yndislegustu tónleika ever með elskulegu belle&sebastian...ég brosti næstum af mér kjálkana skal ég ykkur segja...í bland við nokkur ný lög tóku þau fullt fullt af gömlum lögum og ansi mörg þeirra af uppáhaldsplötunni minni if you're feeling sinister....þau tóku titillagið semsagt og me and the major ble bleblebleblebleble og wrong girl, wrong kind, wrong hands to be holding..og i'm a cuckoo og og og...en elskulega alheimsorkan fullkomnaði kvöldið þegar uppáhaldslagið mitt sem mig langaði mest að heyra varð að uppklappslaginu nr. eitt...úúúúúú get me away from here i'm dying play me a song to set me free...úúúú i'm dying úúúú i'm dying.....ó hvað ég brosti þá....og svo ennþá meira þegar þau enduðu kvöldið á judy and the dream of horses....já mér var ansi illt í kjálkunum eftir kvöldið en leið vel í hjartanu....en nú er það víst heilinn sem þarf að komast í gírinn aftur...lesa lesa lesa um fagurfræði náttúrunnar og sitthvað fleira....sampai nanta over&out...

fimmtudagur, janúar 26, 2006
já já já jahahahahahááááá!!!
já lífið er náttlega yndislegt þrátt fyrir alltsaman...og það er líka yndislegt að vera hér í lancaster að læra og upplifa svo margt nýtt og skemmtilegt...og þó að það séu ekki eins margir kennarar hér með "tré í hjartanu" (eins og einn anti-umhverfissinnaði kennarinn kallaði það í kaldhæðnistón..) eins og voru fyrir nokkrum árum, þá er ég farin að hallast að þeirri hugmynd að nemendurnir séu mikilvægari eftir allt saman...ég var t.d. í kúrs í gær sem heitir fagurfræði náttúrunnar og þar hélt ég fyrirlestur....kúrsinn var hannaður í kringum bók sem einn fyrrverandi kennari hér skrifaði, fröken Emily Brady...en nú er hún farin og líka Isis Brook sem kenndi hann eftir að hún fór, svo að á síðustu stundu réði yndislegi yfirmaður deildarinnar nýjan heimspeking til að kenna kúrsinn...þessi kennari er ekki alveg með á nótunum hvað varðar umhverfið og vill bara taka analítísku heimspekihliðina á málinu....en ég er á því að honum eigi ekki eftir að verða það auðvelt...vegna þess að við nemendurnir viljum skoða hlutina öðruvísi...í gær hélt ég semsagt fyrsta nemenda fyrirlesturinn og í stað þess að tala um hvernig náttúran er ólík listinni útaf einhverjum formum og línum og rugli sem kemur málinu ekkert við þá talaði ég um hvernig náttúran og listin eiga það sameiginlegt að geta veitt okkur mönnunum aukinn skilning á tilfinningum okkar og stöðu okkar í heiminum...hahahhah....hann sagði takk þetta var frábært hjá þér...og af stað fór frábær umræða á milli okkar nemendanna þar sem hann hafði lítið til málanna að leggja....pointið er semsagt: það erum við sem gerum kúrsana góða eða vonda og við erum góður hópur sem getum gert frábæra hluti...ahahaje...vá þarna er gömul kona að pússa gluggann sinn í húsinu á móti mér...en sæt... jebb það er margt skemmtilegt framundan hjá mér líka...ég er að fara að sjá belle&sebastian á mánudaginn...svo 9.feb koma kimonokallarnir að spila í leeds svo ég ætla að skreppa þangað og fara á tónleika með brynhildi og rúnari...kannski bara vera þar yfir helgi...alltaf gaman að hanga í leeds með góðu fólki...haha þessvegna ætla ég einmitt þangað aftur viku seinna og sjá broken social scene með þeim! veiii!!! næstu helgi ætlum við aurora í langan göngutúr að sjónum...og við ætlum líka í partí...helgina þar á eftir er önnur ráðstefna sem nina og martin skipuleggja...um tækni og lýðræði og soleis...svo er stefnt að því að fara í helgarferð til Lake District um miðjan febrúar...nóg að gera og njóta lífsins... eníveis...ég þarf víst að fara að lesa um Kant og hvað honum fannst um náttúruna...vúbberíhei hafið það gott kæra fólk...

þriðjudagur, janúar 24, 2006
frústi frústi frústrasjón...
ég var að koma af fundi um framtíð MAVE prógrammsins míns....þrír möguleikar í boði...loka því, halda því lifandi sem MAVE "light" með kennurum sem eru ekki sérfræðingar í umhverfisheimspeki og kúrsum úr öðrum deildum, eða flytja það til háskólans í preston þar sem einhverjir umhverfisheimspekingar eru starfandi....veiii!!!!!! ég er alltaf voða jákvæð eins og þið vitið en þegar ég er búin að vera á svona fundum sem er búið að gerast alltof oft þá bara verð ég þó nokkuð frústreruð....af hverju er ég hér? til þess að fá þjálfun í að sitja frústrerandi fundi? eða til þess að borga fyrir sérhæfingu sem aðeins eru leifar eftir af? frekar óþolandi verð ég að viðurkenna....en hei! það er víst bannað í mínum hugarheimi að hugsa svona....það sem ég á að hugsa er: ég er heppin að vera hér og ná leifunum! ég fæ fullt út úr þessu og þetta er frábært! það er einhver stórfengleg ástæða fyrir því að ég er stödd hér einmitt á þessu augnabliki því að allt er eins og það á að vera og allt er stórfenglegt og lífið er yndislegt! ...er þetta satt? það hefur verið sannfæring mín hingað til og ég er ekki alveg tilbúin til þess að láta hana róa...en...verður maður ekki líka að líta á hinar hliðarnar? á ég kannski bara ekkert að vera hérna og allt er ekki eins og það á að vera og allt er glatað og ömurlegt? hefur líf mitt síðustu árin verið einn stór misskilningur á því hvað á að vera og hvað á ekki að vera? er ég búin að vera að velja vitlausa leið í hvert skipti sem ég tek ákvarðanir eða tek ekki ákvarðanir heldur fer bara með flæðinu og segi allt er eins og það á að vera? svar óskast kæri jólasveinn...annars er allt frábært að frétta...fór í partí um helgina og komst ekki í neinn einasta partífíling, átti latan sunnudag, eldaði stórfenglega máltíð fyrir vini mína í gær, gaman að geta loksins boðið fólki heim til mín þar sem er kósý og næs en ekki köttur og kúkafýla...kannski ég ætti bara að skella mér til birmingham á fimmtudaginn og sjá belle&sebastian? hlýtur að vera hægt að redda sér bed&breakfast með engum fyrirvara er þaggi? það myndi gleðja mig...kannski ég ætti bara að einbeita mér að því að fara eins mikið í burtu héðan að sjá tónleika og fjöll og firnindi á meðan ég er hér í stað þess að sitja fleiri leiðinlega fundi og frústrasjónir...o well...ég fer í jóga á eftir og sé helvítis ljósið og byrja að jákvæðast aftur...þangað til....andskotans, helvítis djöfuss kúkaprumps kjaftæði! ..sko ég kann ekki einu sinni að bölva almennilega...held ég ætti að halda mig við jáið....elskulega karate biður að heilsa úr geislaspilaranum...sampai nanta...

föstudagur, janúar 20, 2006
neysluhyggja...eða hvað?
vááá....ég er búin að gera svo margt í dag en samt er klukkan bara fjögur....vaknaði snemma og jógaðist á stóra gólfplássinu mínu...fór svo upp í skóla og keypti bækur um fagurfræði og náttúruna og fékk leshefti um náttúruna í evrópskri og rómantískri hugsun...þetta eru semsagt aðal kúrsarnir sem ég ætla að taka þessa önnina...svo ætla ég líka að sitja tvo aðra kúrsa sem heita environmental risk og environmental justice....þetta verður spennandi....þegar ég var búin að skila þessu heim fór ég á útsölu!! það var nú ekki vegna þess að neysluhyggjan hefði gripið mig....ég fékk að kaupa mér prentara í ammælisgjöf frá mömmu og pabba vegna þess að mig vantaði prentara til þess að geta sparað! það er svo fáránlega dýrt að prenta í skólanum að ég var örugglega búin að eyða jafnvirði prentarans í prentkostnað fyrir áramót...svo ég keypti þennan líka fína prentara sem er líka skannari og ljósritari...haldiði að séééé....og hann kostaði skitinn 6000 kall! vegna þess hve þetta var hrikalega ódýrt ákvað ég að fjárfesta líka í annarri nauðsynjavöru...geislaspilara græjum með vekjaraklukku!!!! ég gæti ekki verið hamingjusamari...núna er lali puna í spilaranum hjá mér og það er svo yndislegt!!! og þessi líka mega græja kostaði líka bara skitinn 6000 kall! jebb....svo var ég massa sterk og mössuð og bar báða kassana á strætóstöðina....ú je....þegar ég var búin að tengja allar nýju græjurnar mínar fór ég aftur í bæinn að kaupa í matinn...í kvöld ætla ég að elda fyrstu almennilegu máltíðina mína hér hjá oswald...bara búin að borða dósasúpu og grjónagraut í vikunni....en í kvöld verður það baunarétturinn anna spolliver! uppskrift sem ég fékk hjá henni önnu minni á garðastræti forðum daga og hef ekki enn prófað að elda....kjúklingabaunir, svartar augnbaunir, paprika og laukur...namminamm.....svo er það hópbíóferð með liðinu mínu að sjá afríska mynd um vestur-afrískt land sem er að halda uppá endalok langrar borgarastyrjaldar....eftir bíóið er planið að kíkja á elskulega gregson og kjafta yfir cider-glasi....lífið er ljúft...sérstaklega þegar maður hefur tónlist í herberginu sínu...jibbííí!!!! sampai nanta over&out...

þriðjudagur, janúar 17, 2006
nýtt líf, dalalíf...
jæja þá er allt alveg á leiðinni í fastar skorður og fallega rútínu hjá mér...fyrstu sólarhringarnir voru skrýtnir...fannst eins og ég væri aftur að flytja í burtu frá ísalandi og koma mér fyrir á nýjum stað...en í stað þess að taka nokkrar vikur að venjast tók það bara tvo daga...og núna líður mér yndislega á nýja staðnum mínum í heiminum...ég fór til galgate í morgun og gekk þar um í rólegheitum...fór svo og fékk mér hádegismat með sjálfri mér á æðislega sætu kaffihúsi sem ég vissi aldrei af á meðan ég bjó þar..haha...svo fór ég til helenar og sótti allt dótið mitt og eftir eina leigubílaferð og klukkutíma uppúrtöskum og pokum tínslu var ég formlega flutt á 43 oswald street...það er orðið mjög kósý hjá mér...komnar myndir á veggi og soleis...það er líka kósý fílingur hérna í húsinu... við erum bara þrjú sem búum hér, ég, ian og rosie....höfum það mjög rólegt sitt í hverju horninu en getum líka kjaftað og hlegið niðri í eldhúsi...svo þegar ég var flutt til lancaster ákvað ég að tékka á jógamiðstöðinni hér í bæ...hún heitir dreamyoga og er bara korters labb í burtu frá mér...jógakonan þar heitir grace og er yndisleg orkukona sem hefur komið til ísalands og skilur orkuna þar....ég spjallaði semsagt við hana í dag og mætti svo í tíma núna í kvöld...þetta var massa tími meða massa orku...og ég fæ líklega massa strengi á morgun...haha....en þetta vara bara fullkominn endapunktur á þriðjudeginum sem ég byrjaði nýju rútínuna mína...mmmmdaaaaaa....og nú ætla ég í háttinn og vakna ofursnemma með sólinni og hylla hana með sólarjógaæfingunni....hallelúja praise the sun...það er það sem ég segi....vorið er komið gott fólk...góða nótt og megi alheimsorkan vera með ykkur...

sunnudagur, janúar 15, 2006
aftur á englalandi....
jebbs þá er ég komin aftur til englalands eftir þreytulegan ferðadag....það var svo fallegt að fljúga í burtu frá ísalandi og fullu tunglskini og stjörnum sem lýstu upp himininn og hvítu jörðina....og fljúga smátt og smátt í áttina til sólarinnar...á einum punktir ferðarinnar gat ég horft á bleikgyllta sólarupprásina vinstra megin í glugganum og risastórt tunglið hægra megin....ég hlustaði á stórsveit nix nolte á lestarstöðinni í glasgow á meðan ég beið og þó ég væri alveg að sofna langaði mig nú soldið að taka nokkur dansspor....það er fínt að fá sér blund í lestum og rútum og það gerði ég....kom svo hingað á oswald street í nýja húsið mitt um hálf-fimm leytið...herbergið mitt er svo stórt að ég fæ næstum víðáttubrjálæði....það er skrýtið að vera ein aftur...alein í heiminum fyrir framan tölvuskjá er mikil breyting frá aldrei ein á ísalandi, alltaf umkringd ástvinum...en sodden er det bare...og ég hlakka líka til að hitta lancaster fólkið fyndna á morgun....þá kannski verða hlutirnir eðlilegir aftur...en í dag og í gær er ég stödd á milli raunveruleika og allt er skrýtið....held ég horfi á íslenskt sjónvarp og reyni að láta tímann líða hratt í kvöld....snemma í háttinn...eftir mánaðardvöl heima er ég alveg komin útúr sjónvarpsdagskránni....ekki einu sinni búin að sjá síðasta bachelor þáttinn...haldiði að sé....sampai nanta og góðra nóttur...saknisakn..