<$BlogRSDUrl$>

sunnudagur, febrúar 26, 2006

af góðum görðum og tónlistarsamsteypum...
ég er búin að eiga frábæran sunnudag...ákvað að skella mér í gönguferð í sunnudagskyrrðinni, og viti menn, hérna rétt handan við hólinn er stór og fallegur garður...Staðurinn heitir williamson park og í honum er stór og mikil bygging sem heitir ashton memorial...einhvernveginn hélt ég alltaf að þessi staður væri lengra í burtu frá húsinu mínu...gaman að labba í ævintýragarði með tjörnum og brúm og útsýnissvölum...sýndi mér nýja hlið á lancaster...það er svo margt hérna í þessum litla bæ...ég bauð auroru og michaelu í mat í gærkvöldi og við vorum einmitt að tala um hvað við værum í raun fáránlega heppnar að hafa strax kynnst svona mikið af frábæru fólki...við erum umkringdar af spennandi fólki, svona fólki sem maður talar yfirleitt ekki við um hversdaginn heldur um stærri hluti, fólk sem er að gera allskonar spennandi hluti í samfélaginu sínu...eftir matinn fórum við í strandarpartí hjá jez vini okkar og kynntumst ennþá fleira fólki sem við vorum ekki enn búnar að hitta...ótrúlegt...við héldum að þar sem við þekkjum svona marga nú þegar að það væru ekki mikið fleiri...í gær hitti ég meðal annars konu sem er að vinna að umhverfisfræðsluverkefni í öllum skólunum á svæðinu...og hún og fleiri minntu mig á það sem ég hafði heyrt um lancaster annað en að hér væri góður skóli, og það var að lancaster væri "græna" borgin í bretalandi...og það er einfaldlega vegna þess að hér eru 7 meðlimir bæjarstjórnarinnar í græna flokknum og hér hefur safnast saman mikið af fólki sem vill vinna að því að bæta samfélagið sitt og vinna að allskyns verkefnum...vonandi hitti ég þetta fólk betur og get lært eitthvað sniðugt af þeim...það var planið mitt upphaflega, að læra ekki bara af skólanum heldur líka af samfélaginu...frábært! en þá að tónlistarsamsteypum...ég fór á frábæra tónleika á föstudaginn...þar komu nokkrir skotar og spiluðu fyrir okkur frábæra sveitagleðitónlist...king creosote og vinir hans voru frábærir...og þeir eru partur af tónlistarsamsteypu, fence collective heitir hún...(kíkið á http://www.fencerecords.com) ég hef einmitt séð tvo aðra hluta þessarar samsteypu á tónleikum áður...einn þeirra er james yorkston sem við sáum á atp-festivalinu forðum daga og er snilld, og hinn var lone pigeon, fyrrverandi beta band meðlimur sem ég sá í aberdeen....allt er þetta hið besta sveitafólk með englaraddir og gott skap...þetta lét mig aftur hugsa eins og ég hugsaði eftir broken social scene, hvað það væri frábært að vera í svona tónlistarsamsteypu þar sem fullt af mismunandi tónlistarsköpurum kæmu saman og sköpuðu eitthvað skemmtilegt...jebbsörí...ég keypti tvo diska, einn með fullt af fence fólki og hinn með king creosote...snilld...en nú er komin tími fyrir lestrarstund...ætla að halda áfram að lesa mér til um fagurfræði og siðfræði nátturunnar og hvernig þetta tvennt tengist...ó hvað ég vildi núna að ég hefði farið á ráðstefnuna heima síðasta sumar sem hafði einmitt þennan titil! en endilega segið mér núna hvernig þið upplifið náttúruna...fegurðin spilar stórt hlutverk er það ekki? hvernig upplifum við fegurðina í náttúrunni? er einhver sérstök upplifun sem við ættum að hafa? hvernig tengist þetta siðfræði okkar gagnvart náttúrunni? hmmm....sampai nanta over&out

miðvikudagur, febrúar 22, 2006

lífið er lag...
sem við syngjum saman öll...dag eftir dag...stundum er það gleðilag....stundum dapurt lag, reiðilag, pirringslag...við þurfum að hlusta á þau öll og þau eru öll falleg....mestu máli skiptir er að vita hvaða lag á við hvern dag....og með því að syngja þau eða bara hlusta á aðra syngja tekst manni að takast á við hvert þeirra er þaggi? ég er allavega með semi-bros á vör núna sem er meira en hægt var að segja um varirnar á mér í dag og í gær...þá voru þær bara að herpast saman meir og meir í pirring og reiði...það er auðvelt að faðma neikvæðni og maður verður kannski að gera það ef maður er og vill vera meðvitaður um sjálfan sig og allar þessar tilfinningar sem við erum víst búin til úr....ég hlustaði á modest mouse pirrast og reiðast og fór svo í tíma í fagurfræði...í fyrstu héldu pirringurinn og reiðin áfram útí strætóbílstjórann sem átti ekki skiptimynt og útí kennarann sem var sama um náttúruna en svo smátt og smátt fór ég að brosa útí samnemendur mína sem var ekki sama og töluðu sama tungumál og ég...svo fórum við matt, íslandsvinur(útlendingur sem hefur farið til ísalands..) á barinn og töluðum um neikvæðni og jákvæðni og lífið og dauðann og gvuð og trúarbrögð og fimleika og klifur....og allt þetta færir mig nær jáinu mínu góða...að hlusta á öll lögin og vera meðvitaður er erfitt en gaman og betra og við færumst alltaf nær og nær...hverju? því góða og fagra og jákvæða....þangað á maður allavega alltaf að stefna, jafnvel þegar maður liggur uppí rúmi og starir á loftið og hlustar á modest mouse öskra úr sér allan pirringin yfir heiminum sem er the boat that is definately sinking and the house that is definately burning down og allt það...ég hef það náttlega ofurgott eftir allt saman...fyrsta heila helgin mín í lancaster í langan tíma lítur vel út...fullt af tónleikum og partí eins og vanalega...á morgun tónleikar með tveimur hljómsveitum sem báðar innihalda sitthvorn samnemanda minn...sannar kenninguna að heimspeki og tónlist fer oft saman...á föstudaginn fæ ég að sjá skoska tónlistarsnillingin king creosone, á laugardaginn partí og á mánudaginn aðrir tónleikar með samnemanda og norskum söngfljóðum...gaman gaman....ég fór í yndislega sveitaferð síðustu helgi til lake district sem er rétt handan við hornið...það var yndislegt að labba upp á fjall með álfaklettum og ganga meðfram ævintýraá og gegnum ævintýraskóg og gista í útlenskum sumarbústað með arineldi og á fyrir utan gluggann til að sofna við....lét mann gleyma öllum áhyggjum og slappa af....ég elska sveitina hvar sem hún er og lofaði sjálfri mér að heimsækja hana oft og oft og oft á meðan ég er hér...heppin ég að hafa hana hér í nálægðinni...en núna er það góða nótt og tomorrow is just another now waiting to happen....ég ætla að vakna snemma með bros á vör...góðra nóttur, sampai nanta og over&out...

mánudagur, febrúar 20, 2006

hermi eftir hinum...sjálfsþekking er sniðug...vinsamlegast verið svo væn að fara inn á: http://kevan.org/johari?name=baba+garmey

föstudagur, febrúar 17, 2006

múltímele....
jæja var að koma frá leeds aftur...við vorum á bestu tónleikum lífs míns í gærkvöldi....broken social scene heiðruðu leeds með nærveru sinni....og maður lifandi þvílíka endemis snillinga hef ég bara aldrei séð....þessi tónlist sem hljómar eins og hún verði að verða til í stúdíói á plötunum þeirra var jafngóð ef ekki bara betri lifandi! jidúddamía og maður lifandi! þetta voru orðin sem ég síendurtók skælbrosandi með megaverki í kjálkunum eftir tónleikana....við fengum geggjuð sæti með frábæru útsýni og sátum og sitjadönsuðum þar fyrri hlutann af tónleikunum... sem var snilld því að þau spiluðu í tvo og hálfan tíma án þess að stoppa! þegar leið á síðari hlutann stóðum við upp og dönsuðum og þá kom náttlega uppáhaldslagið mitt á færibandi...sæta lagið á you forgot it in the people...með litlu skæru röddinni þið vitið...síðasti hlutinn á tónleikunum var svo algerlega til að láta mann fríka út af gleði..og þá vorum við komin fremst á besta stað...þau tóku " lokalagið" svo virtust allir vera að fara af sviðinu...en svo var söngvarinn sem er þvílíkur snillingur með súperrödd alltíeinu sestur við trommusettið og hann og fjórir aðrir gaurar (alls voru þau 9!) byrjuðu að spinna svona undurfagran hávaða í líkingu við sigurrós og mogwai og godspeed á mjööög góðri stundu....þannig settu þau fólkið sem líkaði svoleiðis í algeran trans...svo þegar því lauk sögðu þau heheheheee núna erum við búin að fæla í burtu fólkið sem kann ekki gott að meta og nú fáið þið hin verðlaun! svo spiluðu þau fullt af öðrum mega kraftmiklum lögum og gáfu gjörsamlega allt! á einu mómentinu klifraði söngvarinn meiraðsegja niður af sviðinu og faðmaði fullt af fólki! svo enduðu þau á síðasta laginu á nýja disknum þeirra og létu allan salinn öskra með sér af öllum lífs og sálar kröftum...þetta var eins og að fara í kirkju...orkan svoleiðis flæddi inn í hvern einasta tónleikagest og váááá.....við vorum snilldarheppin að vera þarna maður...hljómsveitin var í svo yndislegum fíling...þau voru svo ánægð með salinn líka..þetta var svona írskt samkomuhús...minnti mann á fermingarveislur...þau voru búin að vera að spila á ekki svo góðum stöðum annarsstaðar í bretalandi og voru þvílíkt þakklát fyrir að fá að fara í almennilegan fíling....og allt var þetta hljóðmanninum þeirra að þakka! þau ætluðu ekkert að spila í leeds en hann sagði: afi minn var frá leeds! við verðum að fara þangað! vá hvað ég er þakklát þessum blessaða hljóðmanni! haha! jebs þetta var tónleikasaga vikunnar....nú er ég komin aftur til lancaster í nýjan sápuóperu raunveruleika....mér hafa nebblega borist sápuóperísk email frá skotalandi...sjeize bæze....en allt er víst eins og það á að vera eða eitthvað...kemur í ljós....en nú er það dinner með lancaster fjölskyldunni og svo förum við til lake district í náttúrufegurð og göngur...veivei vei! hafið það gott á fróni mín kæru....ó vá hvað ég saknaði ísalandsins á mánudagskvöldið...fór í bíó að sjá gargandi snilld...heimildamyndina um íslenska tónlistarsnilld....fullt af myndum af yndislegu náttúrunni og fullt af kunnuglegum andlitum á skjánum...og yndisleg tónlist náttlega....hlakka svo til að verða ísalandsbúi aftur....og kannski að byrja að skapa tónlist fyrir alvöru....mér finnst að við "keflvíska" tónlistarfólkið ættum að stofna svona 17 manna súpergrúppu eins og broken social scene eru....hugsði billjón sinnum í gær hvað það væri gaman að vera í svona stórri og fjölbreytilegri hljómsveit...úje...jæja verð að skunda af stað....sampai nanta...

sunnudagur, febrúar 12, 2006

ævintýri í bretheimum og netheimum..
jæja þá er ég komin heim til lancs eftir frábæra dvöl í leeds....við brynhildur og rúnar fórum út að borða á fimmtudaginn fyrir tónleikana á japanskan veitingastað og nammi namm....væri alveg til í að borða oftar í japan...svo voru það kimono (japanskt þema sjáið til..haha)tónleikar á mixing tin og vá hvað mér leið eins og heima í kringum alla þessa íslendinga...og með kunnuga tóna í eyrunum....eftir tónleikana fórum við á klúbb og dönsuðum fram a rauða nótt eins og sönnum íslendingum sæmir...þetta var eiginlega í fyrsta skipti sem ég hef farið á klúbb hér í bretalandi... ég hef alltaf haldið að allir klúbbar séu bara ógeðisstaðir sem spila bara ógeðisdanstónlist...ástæðan er sú að á þeim stöðum sem ég hef búið, lancaster og aberdeen er þetta satt...en í eðalborgum eins og leeds geta klúbbar líka verið skemmtilegir staðir þar sem fólk dansar við eðal tónlist...veiii....mér líkar alltaf betur og betur við leeds...frábært að fá að kynnast henni í gegnum brynrúnar...svo áttum við bara eðalhelgi í eðalborginni með eðalmat og eðalsamræðum....og ég keypti nokkrar eðalflíkur fyrir skít og kanil..yndislegt alveg hreint....en meiri bloggleikir....nú er það svona:
4 vinnur sem ég hef unnið um ævina:
fiskvinnslukona
píanókennari
hótelpía
bíópía

4 bíómyndir sem ég get horft á oft:
flestallar woody allen myndir
north by northwest
horfði einu sinni mjööög oft á reality bites og hárið...en hef ekki gert það lengi...ætti kannski að gera það einn daginn og taka smá nostalgíukast...

4 staðir sem ég hef búið á:
Garðbraut 78
Oddagata 4
Dybbelsgade
Tjarnargata 44

4 tv þættir sem ég digga
simpsons
friends
gilmoregirls
american next top model..hahah..

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum
bermuda
helsinki
ísafjörður
buffalo

4 staðir í netheimum sem ég heimsæki reglulega:
vinabloggin
pósturinn
seeticket.com
nationalrail.co.uk

4 týpur af mat sem ég held upp á:
heimatilbúin mörtupizza
mjöööög vel saltaður grjónagrautur
melbæjarostabrauð
saltfiskur

4 staðir sem ég mundi helst vilja vera á núna:
Garður
Keflavík
Melbær
Reykjavík

4 bloggarar sem ættu að gera svona lista því að það er svo gaman:
Kamilla
Halli Valli
Petra
Kristín

miðvikudagur, febrúar 08, 2006

vorið er komið og grundirnar gróa....
já ég held að vorið sé formlega aaaalveg á leiðinni.....í gær kom hressandi rigning og rok og í dag var sólin komin upp fyrr en vanalega og skein í allan dag....og í þetta skiptið var líka ágætlega hlýtt...vanalega þegar það hefur verið sól hér hefur verið skítakuldi líka en ekki í dag...ég labbaði heim úr skólanum í góða veðrinu og sá mér til mikillar vorgleði ansi marga vísa að fyrstu vorlaukunum/páskaliljunum eða hvað það heitir...allavega eru það gulu blómin sem segja manni að það séu páskar og vor á næsta leiti....ummmmmdaaaaaaa.....ég held að orkan sem er í mér flestallar stundir þessa dagana sé bæði vorinu og mér að kenna...ég vakna með fallegri tónlist klukkan hálfátta og jógast og hugleiði á kvöldin og ég held að það sé ágætisútskýring á orkunni...það eru skemmtilegir dagar framundan...ég fer til leeds á morgun til brynhildar og rúnars og við ætlum á tónleika með kimono...mikið verður gaman að hitta svona marga íslendinga í einu...og einn kanadamann náttlega líka...veiveivei...svo er það inni í myndinni á föstudaginn að við skellum okkur til manchester þar sem sophie er að halda "tónleika í heimahúsi" uppákomu/partí....svo ef við erum í stuði....annars er leeds alltaf í stuði líka en það er aldrei að vita hvað gerist....á sunnudaginn erum við "fjölskyldan" í lancaster að fara að skoða lífræna matjurtagarða á háskólasvæðinu og ætlum að skipuleggja einhverja ræktun þar...gaman gaman....jebs lífið er gott....sæbba rokk gerði skemmtilegan leik á blogginu sínu þar sem hún sagði mér og fleirum skemmtilega hluti um okkur og nú er ég þátttakandi í leiknum svo að....kommentið í kerfið mitt og þá mun ég segja ykkur:
1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig.
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig.
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig.
4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér.
5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig.
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig.
7. Ef þú lest þetta verðurðu að setja þetta á bloggið þitt
þetta hafði sæbba að segja um mig:
1. ofurjákvæða konan
2. bítlalagið um manninn sem kveikti í húsi konunnar sem átti enga stóla
3. strætónammi
4. í öðrum bekk þegar þú komst inní skólastofuna til að bíða eftir mömmu þinni og ég vildi ólm að þú settist hjá mér...
5. letidýr (ekki alltaf samt..)
6. hvar lærðirðu að slást?
ég vill meina að ég kunni nú ekki mikið að slást....en ég kann að slá/sveifla höndunum á methraða á hvern þann sem á mig ræðst...og það er bara náttúrulegt viðbragð....eins og kannski flestallt sem ég geri..hmmm.....jebs náttúran er í mér og ég í henni...að eilífu amen...

mánudagur, febrúar 06, 2006

orkuhelgi...
þessi helgi er búin að vera frábær, undarleg, jákvæð og spennandi...og ég er búin að vera svo yfirfull af orku að það var hálfdularfullt...þetta byrjaði allt á föstudaginn...ég vaknaði í rólegheitum og jógaðist og settist svo við tölvuna...festist þar í tvo heila klukkutíma vegna þess að ég fór inn á mjög svo spennandi síðu...savingiceland.org....mæli með henni...hún lét mig tárast og líka fyllast eldmóði og þegar ég flaug með strætó upp í háskóla var ég einhvernveginn rafmögnuð af orku, spennu og gleði...í háskólanum var semsagt ráðstefna að byrja, svokölluð knowledgelab ráðstefna um tækni og lýðræði og allskonar...allt mögulegt sem tengist tækni og þar á meðal vinnustofur þar sem fólk gat lært að nota allskonar tækni sem getur verið nytsamleg í baráttunni fyrir betri heimi...það eru þau nina og martin sem skipulögðu þessa ráðstefnu eins og activism/academia ráðstefnuna í nóvember, með hjálp okkar allra hinna í "hópnum" okkar...við elduðum mat, sáum um skráningu og allskonar....eeeníveis....ég var að springa úr orku og gleði svo að vinir mínir tóku eftir og ég skildi eiginlega ekkert hvaðan þetta kom...skiptir kannski ekki máli....um kvöldið eftir að ráðstefnan hafði verið sett voru svo tónleikar og partí á the gregson sem er staðurinn okkar....þar var yndisleg hljómsveit sem heitir seize the day og er svona baráttu/þjóðlaga tónlist....allir textarnir um hluti sem þarf að berjast gegn í heiminum og fólkið í salnum fylltist af orku og baráttuanda á sama tíma og það fékk tár í augun að vera minnt á allt þetta vonda sem er til....nákvæmlega sama þemað og ég upplifði um morguninn með savingiceland síðunni...eftir orkudansinn var svo farið heim á skikkanlegum tíma og ég vaknaði klukkan hálfátta á laugardagsmorgninum með bennahemmhemm í vekjaragræjunum mínum og var ennþá að springa úr orku...var komin á ráðstefnuna klukkan 9 og dagurinn var frábær..fullt af upplýsingum og skoðanaskiptum og gleði og góðum mat...um kvöldið var svo dansað og dansað og dansað og dansað orkudans og ég reyndi eins og ég gat að deila orkunni og gleðinni með öllum í gegnum dansinn....yndislega gaman.... sumum bretum og dönum og öðrum finnst ég soldið skrýtin kona sem talar um orku og vatnseindir og álfa og tröll og drauga eins og ekkert sé eðlilegra....en mér er svosem alveg sama hvað fólk segir um mig og ég held að þeim finnist það frekar spennandi heldur en neikvætt...aftur var farið heim á skikkanlegum tíma...og morgunstund á ráðstefnu var skemmtileg....seinnipartinn var samt orkan farin að dvína og ég fór heim og varð heilalaus sjónvarpsglápari....niðurstaðan mín eftir helgina var að orkan er góð og maður á að reyna að halda í hana eins og maður getur....ég ætla að eiga orkuviku og svo aðra og aðra og aðra.....en nú þarf ég að fara að huga að brauðinu sem ég er að baka...bið að heilsa orkulandinu góða...sjáumst þar í sumar þann 21.júlí þegar mótmælabúðirnar hefjast á kárahnjúkum...sampai nanta over&out

fimmtudagur, febrúar 02, 2006

Síðasti vetrardagur...og álitamál...
Í gær var síðasti dagur vetrarins, svo að nú á að vera komið vor....það er ekki alveg komið svona tæknilega séð...skítakuldi úti svo lopapeysan og teppið koma sér afar vel....en í anda er vorið komið og þess vegna ákvað ég að byrja upp á nýtt...setti mér nokkrar lífsreglur...sem ég var svosem búin að setja mér áður en þurfti að koma kraftinum í þær aftur...og hvaða kraftur er betri til að nýta í soleis en kraftur vorsins og sólarinnar sem eru að berjast áfram upp á yfirborðið...svo nú er það bara morgunhanafílingur með jógastund, hugleiðsla á kvöldin, mindfulness, lestur og meiri lestur og aukin skrif í heimspekilegu dagbókina...og auðvitað bros og gleði og meðvitund....Ég er búin að vera að lesa gamlan þýskan heimspeking að nafni Friedrich Schlegel í dag...held ég sé búin að finna nýjan Emerson...það er að segja svona gaur sem ég er svo ofursammála að það er ekki fyndið...fínt að lesa svona gaura sem geta orðað hugsanir manns fyrir mann og látið mann skilja þær betur...ég segi ykkur frá pælingunum hans síðar.... en að öðru mikilvægu...eða hugsanlega mikilvægu...í gærkvöldi stungu nokkrir aðilar upp á því að ég og fleiri MAVE nemendur mundum kæra háskólann....hvað finnst ykkur? ég hef eiginlega tvær skoðanir á þessu máli....annarsvegar segi ég nei vegna þess að ég nenni ekki að standa í meiri pólitík og neikvæðni....en þá segir fólkið þú þarft ekkert að gera mikið....hmm....hinsvegar segi ég já vegna þess að það er óásættanlegt að gera ekki neitt þegar á manni er traðkað....þá er maður óbeint að gefa traðkaranum leyfi til þess að halda áfram að traðka á fleira fólki....fyrir nokkrum árum kærði einn nemandi háskólans í Wolverhampton skólann sinn fyrir að veita honum ekki nógu góða menntun...hann kvartaði yfir því að kennslustofurnar væru ofurfullar og kennararnir lélegir...og hann fékk 30.000 punda skaðabætur án þess að fara fyrir rétt held ég...allavega stendur í blaðinu "out-of-court settlement" ...á sama hátt gæti ég (og sérstaklega ég þar sem ég kem alla leið frá ísalandi og borga meira en helmingi hærri skólagjöld en allir hinir) stefnt skólanum mínum fyrir að blekkja mig í fyrsta lagi til þess að koma hingað á fölskum forsendum þar sem að á heimasíðu deildarinnar stendur að þetta sé besta prógrammið í umhverfisheimspeki í heiminum (nb það stendur þar ennþá svo að væntanlegir nemendur frá ameríku og ísrael eru byrjaðir að sækja um..), í öðru og þriðja og fjórða lagi fyrir að veita mér ekki þá gæðamenntun sem þeir lofuðu...á síðustu önn hafði ég um einn MAVE kúrs að velja þar sem ég var búin að taka hinn kúrsinn áður heima og í skotalandi og ég fíla ekki að taka félagsfræðikúrsa enda kom ég ekki hingað til þess að læra félagsfræði...á þessari önn hef ég ekkert val heldur, ég verð að taka þá tvo kúrsa sem eru í boði í heimspekinni, annar þeirra er bara í boði í gegnum internetið þannig að ég hefði alveg eins getað setið heima á ísalandi og lært þetta, og hinn kúrsinn er kenndur af kennara sem hefur aldrei kennt svona efni áður og hefur gjörsamlega engan áhuga á því...þannig að ég hefði verið betur sett að taka hann bara á netinu líka...það er semsagt bara einn umhverfisheimspekingur sem kennir við þessa deild og hann kenndi tvo kúrsa sem voru báðir á síðustu önn....svo að spurningin er: á ég að kæra háskólann minn? svar óskast takk....

This page is powered by Blogger. Isn't yours?