laugardagur, apríl 29, 2006
æææm going up the country got to get awaaayyyyy...going up the country lalalalallaaaa...

going to the country...got to get awayyyy....going up the country...lalalallalllaaaa...
jæja þá er ég næstum búin að pakka niður fyrir vettvangsferð til skotalands....búin að eiga mjög skemmtilega og fallega viku....sólin skín endalaust og það er geggjað að geta setið útí garði með sólgleraugu að lesa...hmmmm....annars hef ég nú ekkert mikið að segja....á mánudaginn um hádegisbilið verð ég komin í nýjan raunveruleika sem heitir isle of rum og það verður stórkostlega spennandi og skemmtilegt...ég efast um að ég komist mikið í samband við umheiminn á meðan á dvölinni stendur en ég gef örugglega langa skýrslu næstu helgi þegar ég kem til baka...þangað til getið þið skoðað myndir...víííí...hafið það gott og passið ykkur á flugunum...sampai nanta...ove& out...

þriðjudagur, apríl 25, 2006
Vúbbelíhúúúúú!
Jæja ég held ég sé orðin lancastrian aftur....búin að hitta fólkið mitt, fara í skólann minn, versla í búðinni minni, þvo þvottinn minn, labba um bæinn minn...nú á ég bara eftir að elda máltíð í eldhúsinu mínu...komin ný og fancy eldavél og eldhúsborð...ég er að reyna að ákveða mig um hvað ég á að skrifa lokaritgerðina mína...annaðhvort er það að fjalla um heimspeki sem lífsmáta og hvernig fólk verður að hafa einhverja heimspeki á bak við sinn lífsmáta ef okkur á að takast að bjarga heiminum frá risastóra umhverfisvandanum...því hvað er það sem veldur þessum vanda? vestrænt klikkað neyslusamfélag sem er fullt af fólki sem flýtur bara með og hefur engin prinsipp, engar lífsreglur, er bara alveg sama um allt....eða er kannski ekki einu sinni sama heldur er bara svo ómeðvitað að það veit ekki....þið skiljið hvað ég meina...? eða hvað? eitthvað heyrði ég nú um það heima í páskafríinu að fólk gæfist stundum upp á að lesa þessi skrif mín hér því ég væri að tala alltof óskiljanlega eða um alltof óskiljanlega hluti...eníveis...hin hugmyndin mín er að skrifa um environmental education...semsagt um hvernig er best að kenna krökkum og fólki að vera meðvitaðir þegnar samfélagsins sem taka ábyrgð á gerðum sínum....og hætta þá kannski þeim gerðum sem skaða umhverfið...spurning....ég spurði kennarann minn álits og ég fékk nú ekki mikið út úr honum greyinu...eina sem hann sagði var að báðar hugmyndirnar væru góðar en fyrri tillagan væri frumleg og líklega ekki margir sem hefðu gert svipaða hluti....veit ekki hvað hann var að meina með því...að það væri jákvætt eða neikvætt...hmmmm....jebbsörí bob...ég held ég reyni að spá svoldið í þessu í ferðalaginu í næstu viku...ég er semsagt ásamt öðrum nemendum og kennurum að fara til the isle of rum í skotalandi í vikuferð...þessi ferð er semsagt heill kúrs...við erum að fara að stunda outdoors philosophy þar sem þýðir að öll kennslan sem við fáum, fyrirlestrar og umræður, mun fara fram á meðan við göngum um þessa fallegu eyju...efni námskeiðsins er philosophy of conservation in practice...við erum semsagt að fara að skoða afhverju og hvernig er verið að vernda náttúruna...afhverju að vernda þetta svæði en ekki hitt? afhverju að vernda það svona en ekki hinsegin? af hverju erum við að vernda náttúruna? til hvers? fyrir hvern? þessu eigum við semsagt að vera að velta fyrir okkur....skrifum dagbók á meðan á ferðinni stendur og skilum svo lítilli ritgerð...geggjað að geta klárað heilan kúrs á fyrstu þremur vikum annarinnar....þá er hægt að einbeita sér betur að lokaritgerðinni....vúbbíhú.. og ef maður nær að einbeita sér vel að henni og klára hana fljótt er hægt að koma heim um mitt sumar og hjálpa til við að tjalda á kárahnjúkum! og þið verðið öll að koma með! ég sætti mig ekki við það að einhverjir útlendingavinir mínir séu kannski að koma alla leið frá englalandi til að styðja baráttuna en að enginn komi að heiman! það er bara vitleysa! ég er að fara að halda fund hér í bæ þar sem við sýnum heimildamyndir og kynnum þetta mál fyrir fólki...var að fá email frá snarrótargaur sem ætlar að redda mér efni...mig vantar sjálfboðaliða til að sækja þetta til hans og senda mér það....en áður en sjálfboðaliðinn sendir mér það væri frábært ef hann/hún myndi halda samskonar fund heima á reykjanesinu....mér finnst absúrd að vera að fræða fólk í lancaster um þetta mál á meðan enginn fræðir fólkið heima....jæja búin að munnræpa nóg í bili...sampai nanta over&out

sunnudagur, apríl 23, 2006
skrýýýýýtið líf....
það tekur mig alltaf soldin tíma að jafna mig og fatta svona flakk á milli raunveruleika...ég verð svona tóm inní mér eitthvað....ferðalagið var fínt...ég steinsvaf í flugvélinni, þurfti svo að taka tvær rútur og eina lest til að komast hingað til lancaster...það tók allan daginn, var komin um 5 leytið...skipti ferðalaginu í svefn, gluggagláp og lestur...byrjaði að lesa draumalandið hans andra snæs á kaffihúsi í carlisle þar sem ég þurfti að bíða eftir næstu rútu....held ég haldi bara áfram að lesa í kvöld og fari svo snemma í háttinn....ég er einhvernveginn ekki stemmd til að sökkva mér í að snurfusa ritgerðirnar strax...kíki kannski aðeins á þær...oj hvað ég röfla....ekkert skemmtileg...en sólin skín samt hér í englalandi og vorið alveg farið að sjást....blómatré og stór fiðrildi á sveimi...og þægilega hlýtt...á morgun ætla ég að vakna snemma og jógast og henda mér svo útí lífið hérna...busla í lauginni....synda nokkrar ferðir og koma svo heim í heita pottinn í sumar....þessi tilfinning sem er í mér er líka bara svona það er allt svo stórt og mikið og margt að gerast og þarf að gerast....en ég komst víst að því um daginn að þegar svona ástand kemur upp þarf maður bara að skipuleggja sig....leyfa frumunum að vita hvað er á seyði svo þær viti hvert þær eru að fara og hvað þær eiga að gera....annars verða þær dreifðar og stefnulausar og það getur valdið andlegri vanlíðan....þema þessa páskafrís var semsagt efni og andi eru eitt, líkami og sál eru eitt...við þurfum að læra að skoða heildina betur..skrifaði eitt stykki ritgerð um þetta og soleis..og í stíl við þemað var náttlega viðtal við þýska læknakonu í flugvélamogganum í morgun þar sem hún ræddi um að læknavísindin þyrftu að taka þetta til greina: efni og andi eru eitt....hafið það í huga kæra fólk....góða nótt frá englalandi....

föstudagur, apríl 21, 2006
hæ hó jibbí jei það er bráðum 22. apríl!
og þá höldum við herkveðjupartí á ránni! allir að koma og hafa gaman...hlusta á skemmtilega tónlist og tala um spennandi hluti...rúnni júl, æla, tokyo megaplex kira kira og kafteinn hafsteinn og áhöfnin spila og það verður stuð....já það er semsagt soldið mikið að gera þessa dagana...langar að leggjast upp í rúm og sofa í tvo þrjá daga en það er víst ekki í boði...allt að gerast gott fólk...vonandi sé ég alla á laugardaginn því á sunnudaginn verð ég aftur komin til englalandsins í hinn raunveruleikann minn....sampai nanta over&out