sunnudagur, júlí 30, 2006
ég kynntist emily dickinson í fyrsta skiptið heima hjá asil vinkonu minni í gærkvöldi...þegar ég opnaði bókina hennar í fyrst skiptið var ljóð númer 511 á síðunni...mér finnst það fallegt....það er svo gaman hvernig ljóð og sögur geta sett myndir í hugann manns...
511
If you were coming in the Fall,
I’d brush the Summer by
With half a smile, and half a spurn,
As Housewives do, a Fly.
If I could see you in a year,
I’d wind the months in balls --
And put them each in separate Drawers,
For fear the numbers fuse --
If only Centuries, delayed,
I’d count them on my Hand,
Subtracting, till my fingers dropped
Into Van Dieman’s Land.
If certain, when this life was out --
That yours and mine, should be
I’d toss it yonder, like a Rind,
And take Eternity --
But, now, uncertain of the length
Of this, that is between,
It goads me, like the Goblin Bee --
That will not state -- its sting.
skrýtin kona hún emily...sat inni í herberginu sínu mest allt lífið sitt og skrifaði falleg ljóð...nú ætla ég að vera skrýtin kona og sitja hér inni þangað til seinnipartinn á morgun og skrifa kafla número þrjú....sampai nanta...
laugardagur, júlí 29, 2006
kastalapartí í maí...
garðurinn minn í mars...
grasið hjá húsinu mínu í apríl...
ég, noel og matt í maiu húsí í júní...
kerri og amy í yorkshire dales í júlí....skrifin ganga vel....komin með meira en helming af lokaritgerð.....ætla út á markað í rauðum kjól...sampain nanta...
föstudagur, júlí 28, 2006
í dag vaknaði ég réttu megin í veröldinni og í tilefni af því gerði ég klukktíma jógasession...feel good....svo er ég búin að sitja og skrifa í rólegheitum í allan dag...höfuðið mitt mikið skýrara og til í að hugsa og skipuleggja og skapa...jákvæðni borgar sig....jæja meira skrif....sampai nanta..
fimmtudagur, júlí 27, 2006
vaknaði öfugu megin í rúminu...ritstífluð og frústreruð...áhyggjufull og neikvæð...ákvað þá að fara í langan hjólatúr upp í skóla....villtist næstum því...þurfti að hjóla upp milljón brekkur....ætlaði að hvíla mig á grænum akri en þá komu brjálaðar kýr og réðust á mig hlaupandi....svo kom stórt gat á töskuna mína svo allt datt út....fór á bókasafnið og þurfti að borga 4 pund í sekt....gleymdi lyklinum að post grad herberginu sem ég þurfti að fara í ....ákvað að setjast niður við tré og slappa af....þá kom risastór vespa og réðist á mig....svo fékk ég risastóran hausverk...ældi...tók verkjatöflur og lagði mig....en nú er ég komin fersk úr sturtu og ætla ekki lengur að leyfa neikvæðum straumum að leika um mig.....svona dagar gerast bara þegar maður byrjar þá í vondu skapi....lexía: ekki vera neikvæður og í vondu skapi....sampai nanta over&out
miðvikudagur, júlí 26, 2006

grikkir og norðmenn...
nú er næsti kafli að byrja....grikkirnir gömlu og norðmaðurinn arne naess ætla að kenna okkur að lifa heimspekilegum lífsmáta...ég vaknaði í morgun og fór út á þak í smá jógateygjur...á næsta þaki var smiður að laga þakið..svo þegar ég fór út með tebollann minn rétt áðan spurði hann mig útí teygjurnar "that thing you were doing this morning...does it really work?....hann er stressbolti greyið og var að velta fyrir sér hvort þetta virkaði í raun og veru...haha..fyndið...ég sagði honum að þetta svínvirkaði og hann ætti endilega að skella sér í jógatíma...ég átti yndislega sveitahelgi í norðaustur englalandi..fór á hippafestival í litlum bæ að nafni newstead...það var gaman að vera í tjrálandinu...nottingham skógur þar sem hrói höttur bjó er þarna allt í kring....lyktin og útsýnið allt öðruvísi en hér í akralandinu....ég var komin til newstead á föstudagskvöldið í myrkrinu...hitti dave og vini hans ollie og martin og við tjölduðum og bjuggum til eld...sátum í rólegheitum og spjölluðum...alltíeinu heyrðum við þrumur langt í buskanum og sáum smá eldingarljós....á mettíma hlupu svo þrumurnar og eldingarnar nær og nær þangað til þær voru komnar alveg að okkur...mystísk vindkviða og svo hellidemba....það var magnað að sjá eldingarnar og heyra brjáluðu þrumurnar....en rigningin rak okkur inn í tjald...þegar við vöknuðum snemma á laugardagsmorgni var allt orðið skrjáfaþurrt og heitt...morgunte og sólbað...svo fórum við á festivalsvæðið þar sem john the poet var að fara með fyndin ljóð á open mic sviðinu..dave fór náttlega og tók nokkur lög...heillaði hippana á svæðinu upp úr skónum með dylan og neil young...sólin skein og það var algert blankalogn....en alltíeinu gerðist algert bíómyndaveður aftur....þið vitið í bíómyndum...blankalogn..svo alltíeinu smá vindur....svo leit ég upp og sá risastórt og ógnandi dökkgrátt ský...svo kom alltíeinu svaka vindkviða sem feikti laufunum úr trjánum í stóra hringi...og svo eins og guð hefði kveikt á sturtunni sinni byrjaði að helli helli hellirigna....það var gaman...festivalfólkið kom sér annaðhvort vel fyrir í danstjöldunum eða dansaði í rigningunni..tveimur tímum seinna var komin sól aftur og hún steikti okkur það sem eftir var af festivalinu...á sunnudaginn voru svo engar lestir til lancaster svo ég fékk að sjá meira af norðaustrinu....fór með dave og ollie til newark í fish and chips...mmmm....newark er falleg borg...vötn og tré og garðar á hverju horni....svo var ferðinni haldið til litla þorpsins ruskington þar sem foreldrar daves búa....fallegt fólk...gamlir hippar....píanó í stofunni...ég fékk að halda morgun tónleika á mánudagsmorgunin...gaman að spila amelie valsana á gamalt falskt píanó...svo fékk ég far til lincoln sem er önnur falleg borg með risastórum kastala....komin til lincolnshire sem dave segir að sé miklu betra og fallegra en nottinhamshire við hliðina....ekki viss um að hann sé hlutlaus þar sem ruskington er lincolnmegin....mér finnst bæði skírin falleg...þaðan tók ég lestina heim...þegar ég kom heim ofursvöng og þreytt var ég svo ofurheppin að amy og kerri voru að undirbúa matarboð með dýrindis veitingum....og mér var náttlega boðið...haha....góður endir á fallegri helgi....en nú er raunveruleikinn tekinn við og ég ætla að skrifa kafla númer tvö á næstu dögum....ætla helst að klára hann fyrir næsta þriðjudag því þá fæ ég gest!!! veiiiii!!!!! thelmulíus greifi skellti sér á flugmiða í síðustu viku og ætlar að tjilla með mér hér í lancaster síðustu vikuna mína....veiiii!!!!!!!! það er svo frábært að fá fólk að heiman hingað að sjá lífið mitt....þá verður dvöl mín einhvernvegin raunverulegri þegar ég kem heim...það er alltaf svo óraunverulegt að tala um staði og fólk sem maður hefur hitt þegar enginn heima hefur séð....það verður gaman gaman gaman!!! og þessvegna þarf ég að skrifa skrifa skrifa núna!! hafið það gott mín kæru...sampai nanta luv&peace..
föstudagur, júlí 21, 2006
föstudagsfriður...jammerí...ég er að reyna að prenta út 30 blaðsíður af nótum til að vinna kafla númer tvö uppúr...þetta gerist allt á endanum..nú er bara að lesa og leggja höfuðið í bleyti yfir helgina....ég er að hugsa um að fara í ferðalag seinna í dag...newstead tree fest verður áfangastaðurinn....lítið local hippafestival þar sem maður getur dansað og sungið og líka kynnt sér umhverfisvernd og náttúrulega heilsuvernd...kannski maður fái jógatíma og nudd...svo kem ég endurnærð í kafla númer tvö á mánudaginn..ég varð hálfringluð í gær því það var svo margt að gerast....þetta er að verða rútína hjá mér...á tveggja vikna fresti sirka fæ ég "það er allt að gerast-ringlið"....en það er alltaf bara gott að sleppa ringlinu út og þá er maður alltaf afslappaður á eftir...haha..jessöríbob...ég tók mér einn útidag í þessari mega sólarviku...ég fór með amy og kerri niður að lune ánni...við fórum að devils bridge sem er fallegur staður með brú sem fólk dýfði sér af í ánna...það var svo frábært að geta synt! ég er búin að vera að sakna þess að synda í allt sumar....og fyndið að synda í djúpri á...ekki alveg það sem maður gerir í jökulánum heima...ég tók bókina mína með því það var lestrardagur hvort sem er...sat undir tré og las í góðum fíling...en það gerðist soldið glatað líka...þetta er saga...þegar ég var sirka 12 ára fékk ég að fara með myndavélina hennar mömmu niður að á...taka myndir af öndunum...og ég missti myndavélina í ánna...ónýt...nokkrum árum seinna var ég úti á skaga að taka myndir á fínu gömlu olympus myndavélina mína...datt í sjóinn..ónýt...svo fékk ég myndavél í útskriftargjöf...ég flaug yfir atlantshafið með hana...og hún var ónýt....ég hefði átt að vita að það er ekki góð hugmynd í mínum heimi að fara með myndavélina niður að á....hún fór þangað og varð þar eftir...svo nú á ég ekki lengur myndavél....ég tek þessu með stóískri ró í anda pælinganna minna...maður á ekki að pirra sig yfir veraldlegum hlutum og einhverju sem er búið og gert...ég var mest leið yfir því að geta ekki tekið myndir af devil's bridge og sýnt ykkur hér...en svona er lífið....næsta myndavél fær aldrei að koma nálægt vatni...en jæja prenta út og lesa....nei eitt annað! ef þið eruð ekki á leiðinni á kárahnjúka í dag eða á næstu dögum þá skuluð þið breyta um plan núna!! ef ég væri heim finndist mér að það væri skylda mín að fara þangað og taka þátt í að koma í veg fyrir að landið okkar verði eyðilagt...þetta snýst ekki bara um kárahnjúka...það er líklega of seint að stoppa það..en það er ekki of seint að stoppa stóriðjustefnuna...þetta má ekki gerast aftur....þetta er ykkar tækifæri til að ekki gera ekki neitt! drífa sig.....þetta er líka síðasta tækifæri til að sjá þetta svæði...og frábært tækifæri til að fara í spennandi útilegu....fullt af list og tónlist og fallegu fólki....ég vildi að ég gæti verið þar....en jæja..sampai nanta over&out
laugardagur, júlí 15, 2006
já hún kemur alltaf aftur þessi blessaða sól mar...veturinn kíkti aðeins í heimsókn með smá rigningu en sólin er víst valdameiri....ég fékk óvænta heimsókn í gærdag...sólin kom í heimsókn snemma morguns og ég settist við skrifborðið og byrjaði á land as community ritgerðinni...innidagur í útiveðri framnundan...en þá bíbbaði síminn minn frá fröken Jo Harrison...snillingurinn frá manchester sem er núna frá london og vinnur við að búa til sjónvarp alla daga var loksins komin í helgarfrí og í tilefni dagsins ákváðu hún og hennar Robin að heimsækja mig og hafa gaman í lancastersól á föstudegi....svo ég fékk þessa líka eðal afsökun fyrir að eyða deginum úti...veiveivei!! það var yndislegt að hanga með þeim og kjafta um lífið...í dag er sólin í heimsókn aftur en ég sit inni í sólskinsherberginu hennar auroru sem er ég er búin að nota fyrir skrifstofu síðan hún flutti út...geggjað...en í dag koma Ian og Tania heim frá canada svo þetta verður síðasti lúxus-skrifstofu dagurinn...svo það er eins gott að nota hann vel...markmiðið er að skrifa að minnsta kosti helminginn af land as community ritgerð í einum grænum...men ó men...finnst ykkur ekki óþolandi þegar maargir jafn skemmtilegir og frábærir og nauðsynlegir hlutir þurfa að vera að gerast á sama tíma og maður þarf að velja á milli? óóóóþoooolandi! næstu helgi er eins og þið vonandi öll vitið fyrsta helgin af mótmælabúðunum við Kárahnjúka....ég vildi óendanlega mikið að ég gæti verið þar en það er víst ómögulegt....en næstu helgi eru líka tvennt annað að gerast...í mögulega heiminum....flestallir bestu vinir mínir og kunningjar héðan frá lancaster, matt, aurora, noel, ellie, birgit, martin, nina, mike, larry, stephen, maia, hugh, jaz, uli, kathrine og allir hinir eru búin að leigja camping barn í middlewood sem er fallegur staður hér nálægt..stór útileguferð með varðeldi og öllu tilheyrandi...og svona eiginlega líka gott tækifæri til að kveðja....á sama tíma er yndislegt hippafestival að gerast í nottingham skóginum...treefest...og þangað get ég farið og hitt dave og fleira skemmtilegt fólk héðan frá lancaster og frá nottingham....get ég fengið að skipta mér í tvennt í eina helgi og vera á báðum stöðum? eða jafnvel í þrennt og fengið að fara á Kárahnjúka líka? en ef það er ekki hægt að skipta mér...hvað á ég þá að gera? o well ætli ég fari ekki bara með flæðinu eins og vanalega og endi þar sem ég á að enda....allar tillögur þó vel þegnar...en júmmeríjó nú er tími til að halda áfram að ritgerðast....later dude...
þriðjudagur, júlí 11, 2006
ég er í þessum skrifuðu orðum að prenta út fyrstu drög að fyrsta kaflanum í lokaritgerðinni minni!! sem þýðir einn þriðji búinn...13 blaðsíður, 5215 orð...aðeins 9785 orð eftir!!!! þetta er fljótt að gerast þegar það gerist....nú er bara að lesa yfir og senda til leiðbeinendanna minna og vona að þeir svari....annars er það helst í fréttum að í dag hlusta ég á aðrar tónlistartegundir en blús....vitiði hvað það er gaman að hoppa um og dansa í risastóru herbergi með bennahemmhemm hátt stillt á spilaranum? mæli með því...og fólkið sem starir á þig upp um gluggann má bara hlæja í friði...hahah....ég á víst að vera að flytja á morgun en ég er ekki enn byrjuð að pakka....ekki alveg að nenna að kveðja risastóra herbergið sem er búið að hjálpa mér svo mikið að skrifa....jebbsöríbob...annars er það helst að frétta að í dag hringdi ég stutt símtal til ísalands og breytti einu stykki flugmiða....óvissan loksins farin, nú veit ég hvenær ég kem heim....og það verður þriðjudaginn 8unda ágúst....jibbíjei og búrgúmsjei...sjáumst...
mánudagur, júlí 10, 2006
sit við gluggann minn og að þessu sinni er vindurinn inn um hann kaldur...á laugardagskvöldið gekk ég um bæinn þveran og endilangan í grenjandi rigningu....blúsinn og kuldinn læddust inn með rigningunni en hún var falleg...og blús er fallegur....þemað fann leið sína í geislaspilarann líka...nikulás dreki syngur blús á gamalli upptöku frá herberginu sínu í Tanworth-in-arden....og blúsmaðurinn dave syngur blús með hljómsveitinni sinni tinkers á nýrri upptöku sem ég fékk í kveðjugjöf....það er skrýtið að kveðja vini mína hérna...og það að segja bless bless við dave gerði mér grein fyrir að eftir ekki svo marga daga þarf ég að kveðja ekki bara einn yndislegan vin heldur marga marga....blúúúhúúúús....það er nebblega öðruvísi að kveðja vini frá útlandinu heldur en ykkur því ég býst alltaf fastlega við því að sjá ykkur aftur eftir ekki svo langan tíma og svo aftur og aftur og aftur að eilfíu...en það væri undarleg tilviljun ef ég ætti eftir að hitta allt góða fólkið hérna aftur....en svona líður manni bara af því að heimurinn manns er góður og maður á fullt af vinum sem umlykja mann ást og orku...og á maður þá ekki að vera pínu glaður í hjarta sínu og brosa inní því þegar blúsinn kemur? jú það held ég...svo ég brosi bara skakkt með nikulási dreka og syng goodbye is too good a word babe, so i'll just say fare thee well....
fimmtudagur, júlí 06, 2006
jebsöríbob ég er á fullu að skrifa fyrsta kaflann minn í lokartigerðinni...gaman gaman...ég er búin að skrifa með pásum í 3 daga núna og afraksturinn eru næstum 3000 orð....bara 120000 í viðbót og þá er þetta komið....ég ætti víst líka að fara að huga að 5000 orðum fyrir land as community kúrsinn en það er aðeins seinna tíma vandamál...í næstu viku....annars er það ekkert grín að sitja inni við skrifborð og eiga að skapa ritgerðir þegar sólin skín eins og brjálæðingur og hitabylgjan ætlar alveg að kæfa mann...maður er svona meira í stuði fyrir að sitja í garðinum með kaldann drykk og tónlist og fólk heldur en einveru og skrifborðssetu...ojojojoj....þessvegna eru skólar yfirleitt bara starfandi á veturna....þetta er alltof erfitt í sumrinu....en eeeeníveis..nóg um ritgerðir....nú er aurora mín flutt út frá oswald street....það er einmanalegt án hennar en ég er alveg að fíla að hafa risastórt aukaherbergi með engu nema stóru skrifborði við gluggann...mjög hentugt fyrir mitt mission þessa vikuna....svo ætla ég bara að elta auroru í næstu viku....þannig er að hún, uli, michaela og ingmar leigðu sér hús saman yfir sumarið, bara júlí, ágúst, september, og það er mjöööög ódýrt...allir háskólanemarnir fara nebblega heim til sín á sumrin svo að fullt af húsum eru tóm yfir sumarið svo að leigusalarnir eru viljugir til að leigja þær út á hálfvirði....ingmar er semsagt með eitt herbergi í húsinu en í næstu viku er hann að fara á mánaðarflakk um ungverjaland og króatíu svo að ég ætla að taka við herberginu á meðan....25 pund á viku í staðinn fyrir 48 pund...það munar aðeins....jæja verð víst að fara að ritgerðast....hafið það gott í sólinni sem ég ætla að senda ykkur....sampai nanta over&out
sunnudagur, júlí 02, 2006
ég er búin að eiga skrýtna og góða helgi hingað til...sunnudagur er nafn við hæfi í dag...sólin og hitin skííííínaa...knowledgelab ráðstefna númer þrjú hefur semsagt verið í gangi þessa helgi og eins og vanalega er ég búin að vera á fullu að hjálpa til við matargerð og annað bull..gaman gaman...þema ráðstefnunnar að þessu sinni var Care of the Self og bar hún hið skemmtilega nafn Who Cares? og eins og vanalega er ég og mín orka og mitt líf í takt við það sem er að gerast....á föstudaginn var ég rosalega slöpp allan daginn..ég gat ekkert borðað og var þarafleiðandi mjöög orkulítil og skrýtin...á föstudagskvöldið byrjaði lækningin mín...kona að nafni elham gaf mér indverkskt höfuðnudd og sló orkuna mína alla til og frá og eftir það leið mér mun betur...þá sagði ég líka við hana hvað það væri fáránlegt að gera ekki alla þessa orkugefandi hluti sem maður veit að maður getur gert til þess að líða betur...bíða bara frekar í staðinn eftir því að líða illa og pæla þá í því....vitleysa....ég fór snemma að sofa á föstudaginn og vaknaði hress í gærmorgun...ég valdi námskeið á ráðstefnunni sem mig grunaði að myndu innblása mig til frekari hugleiðinga og það virkaði....fyrra námskeiðið sem ég fór á var hjá hinni þýsku marinu, mömmu ninu, hún er sálfræðingur og gúrú....umfjöllunar efnið okkar var líkaminn...við töluðum mikið um líkamana okkar, hvað okkur líkar og hvað ekki og hvernig ímynd okkar af líkömum okkar og sjálfum okkur mótast af allskyns steríótýpum og hugmyndum sem eru allstaðar í kringum okkur...við gerðum líka allskonar æfingar sem voru mjög góðar og tengdu okkur einhvernveginn betur við líkamann og það sem hann vill segja...fyrsta æfingin var bara að slappa af og hrista sig soldið, labba svo aðeins um herbergið, stoppa svo og loka augunum og athuga hvaða ímynd kemur upp í hugann sem einskonar myndlíking fyrir líkamann okkar, ég sé líkamann minn sem.....myndin sem kom upp í hugann minn var stórt grænt tún...frelsi, sagði sálfræðingurinn...svo gerðum við aðrar æfingar sem voru alveg magnaðar... formið á 8 er fallegt form...það er formið sem eindirnar sem við erum búin til úr víbra í á sub mikrókosmísku sviði...við gerðum semsagt þrjár 8 forms æfingar sem voru snilld...fyrsta var að ímynda sér áttu koma upp bakið, krossa á höfðinu og fara upp í loftið og svo niður magameginn....önnur var að ímynda sér 8 formið einhversstaðar inní líkamanum þar sem okkur fannst við þurfa heilun eða lækningu...þriðja var að standa kjur og ímynda okkur að allar frumur líkamans væru að hreyfast í 8 formi...vááá....mæli með að prófa þetta...þegar þessu var lokið enduðum við á að leyfa líkamanum að tala við okkur og segja okkur eitthvað hugtak sem hann vildi að við gæfum honum...ég var ekki alveg viss fyrst...mér fannst pínu erfitt að láta enskt orð poppa upp í hausinn á mér...talar líkaminn minn ensku? hahah...svo að fyrst var ég að reyna soldið og þá hugsaði ég um hugtökin orka og ást...fannst það góð orð til að gefa líkamanum...en svo þegar ég hætti að hugsa poppaði orðið respect, virðing upp í hugann á mér...ég fattaði ekki alveg fyrst afhverju þetta orð kom....fannst það hálf óviðeigandi eitthvað...en svo náði ég því...líkaminn minn bað mig að virða sig...og það þýðir að gera alla góðu orkugefandi hlutina sem ég veit að ég get gert og það þýðir að hætta orkusjúgandi hlutum líka....svo fór ég í gönguferð og fór að hugleiða þessi þrjú hgutök, ást orka og virðing...og þá sá ég hvað þau fara vel saman....og þá ákvað ég að þetta eru þau þrjú hugtök sem ég ætla að setja í allt og alla í kringum mig...meiraðsegja vatnið sem ég drekk og matinn sem ég borða...blessa allt og alla með ást, orku og virðingu....og þá ætti lífið að verða fallegt....ég endaði svo daginn á hugleiðslunámskeiði....og vá hvað mér leið hundrað og silljón sinnum betur en á föstudaginn...í dag ætla ég að tjilla heima hjá mér og í sólinni...reyna kannski að ritgerðast soldið...ástæðan fyrir að ég var svona slöpp á föstudaginn held ég að hafi bara verið allt litla stressið og spennan sem er búin að vera að byggjat upp í maganum á mér yfir öllum litlu og stóru en aðallega endalaust möörgu hlutunum sem eru að gerast í lífinu mínu ákkúrat á sömu stundu....þannig að ég þarf að reyna að róa niður hugansir tengdar þessu....ég var að tala við ninu í gærkvöldi..hún gerði mave í fyrra...hún sagðist hafa skrifað sína lokaritgerð á 2 vikum....ekki það að ég vilji gera það..alls ekki...en það þýðir kannski að ég þarf ekki að vera svo stressuð yfir tímaskorti..ég hef ennþá 2 mánuði og 11 daga....hún sagði mér líka að fólk gæti fengið að skila ritgerðinni í desember og útskrifast aðeins seinna....mér datt í hug að kannski væri það sniðug hugmynd...það væri mjög afslappað og þægilegt að geta skrifað eins mikið og hægt er hér og svo klárað í rólegheitum heima....pínu hrædd um að síðustu vikurnar fyrir ritgerðarskilin verði stress þar sem þær verða líka fyrstu vikurnar af kennaranámi og starfi heima á fróninu....kannski ég tékki hvað líkaminn minn segir um það.....ég mæli með að tjatta við líkamann oftar...núna er minn að segja mér að sækja stóra vatsnflösku og leggjast út í sólina....sampai nanta over&out...